[an error occurred while processing this directive]
Nefndir Alþingis
[an error occurred while processing this directive]
Fastanefndir
Fastanefndir þingsins eru 12 talsins:
- allsherjarnefnd (a),
- efnahags- og viðskiptanefnd (ev),
- félagsmálanefnd (fél),
- fjárlaganefnd (fl),
- heilbrigðis- og trygginganefnd (ht),
- iðnaðarnefnd (i),
- landbúnaðarnefnd (l),
- menntamálanefnd (m),
- samgöngunefnd (sg),
- sjávarútvegsnefnd (sj),
- umhverfisnefnd (um),
- utanríkismálanefnd (ut),
Auk þess starfar kjörbréfanefnd (k)
sem hefur það hlutverk að prófa kjörbréf og kosningu nýkjörinna þingmanna og varaþingmanna.
Kosið er í nefndirnar á fyrsta fundi hvers þings og gildir sú kosning til upphafs næsta þings. Í hverja fastanefnd eru kosnir 9 þingmenn nema fjárlaganefnd en í hana eru kosnir 11 þingmenn. Í utanríkismálanefnd eru að auki kosnir 9 varamenn.
Boða skal til fyrsta fundar nefndar innan viku frá kosningu hennar og kýs nefndin þá formann og varaformann.
Sérnefndir
Heimilt er að kjósa sérnefndir til að fjalla um einstök mál en um þær gilda sömu reglur og um fastanefndir þingsins eftir því sem við á. Lagafrumvörpum sem fela í sér tillögu um stjórnarskrárbreytingu skal vísað til sérnefndar sem oftast er kölluð stjórnarskrárnefnd.
Aðrar nefndir
Forsætisnefnd
Alþjóðanefndir
[an error occurred while processing this directive]