Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 499 . mál.
Ed.
1123. Breytingartillögur
við frv. til l. um ráðstafanir vegna kjarasamninga.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (EG, MF, JE, VS).
1. Við 2. gr. Í stað „1. júlí 1989“ komi: 1. júní 1989.
2. Á eftir 7. gr. komi ný grein er orðist svo:
. 10. gr. laga nr. 23 28. maí 1985, um ríkisábyrgð á launum, orðist svo:
. Hafi krafa samkvæmt lögum þessum á hendur ríkissjóði verið framseld glatast réttur til greiðslu hennar úr ríkissjóði. Þetta á þó ekki við ef krafan hefur verið framseld stéttarfélagi launþegans eftir að skiptameðferð á búi vinnuveitandans hófst né heldur ef krafan hefur verið að fullu eða að hluta til framseld Atvinnuleysistryggingasjóði.
Prentað upp.