Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 35 . mál.


Ed.

35. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 17 3. apríl 1990, um ábyrgðadeild fiskeldislána.

(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990.)



1. gr.


     2. mgr. 8. gr. laganna orðist svo:
     Með gildistöku laga þessara falla úr gildi 3. málsl. 1. mgr. 22. gr., 3. mgr. 22. gr. og setningarhlutinn „og nánari reglur um álagningu og innheimtu gjalda skv. 22. gr. ef til þess kemur“ úr 1. mgr. 23. gr. laga nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, sbr. lög nr. 3/1989, um breyting á þeim. Skuldaviðurkenningar, sem fiskeldisfyrirtæki hafa gefið út vegna áhættugjalds á grundvelli sömu lagaheimilda, falla einnig úr gildi. Hinn 1. júlí 1990 fellur úr gildi II. kafli laga nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, sbr. lög nr. 3/1989, um breyting á þeim. Jafnframt því að yfirtaka þær einföldu ábyrgðir sem Tryggingasjóður fiskeldislána hefur gefið út til handa Framkvæmdasjóði Íslands skal ábyrgðadeild fiskeldislána yfirtaka sjálfskuldarábyrgðir sem Framkvæmdasjóður hefur undirgengist gagnvart lánastofnun á grundvelli þeirra.

2. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Um frumvarp þetta, sem lagt er fyrir Alþingi skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar, vísast að öðru leyti til meðfylgjandi fylgiskjals.




Fylgiskjal.



BRÁÐABIRGÐALÖG


um breyting á lögum nr. 17 3. apríl 1990,


um ábyrgðadeild fiskeldislána.



F ORSETI Í SLANDS
gjörir    kunnugt: Fjármálaráðherra hefur tjáð mér að vegna ákvæða í nýsettum lögum nr. 17/1990, um ábyrgðadeild fiskeldislána, ríki óvissa um yfirtöku ábyrgðadeildarinnar á sjálfskuldarábyrgðum sem Framkvæmdasjóður Íslands hefur gengist undir. Beri því brýna nauðsyn til þess að breyta 8. gr. fyrrnefndra laga.
                       Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið:

1. gr.


     2. mgr. 8. gr. laganna orðist svo:
     Með gildistöku laga þessara falla úr gildi 3. málsl. 1. mgr. 22. gr., 3. mgr. 22. gr. og setningarhlutinn „og nánari reglur um álagningu og innheimtu gjalda skv. 22. gr. ef til þess kemur“ úr 1. mgr. 23. gr. laga nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, sbr. lög nr. 3/1989, um breyting á þeim. Skuldaviðurkenningar, sem fiskeldisfyrirtæki hafa gefið út vegna áhættugjalds á grundvelli sömu lagaheimilda, falla einnig úr gildi. Hinn 1. júlí 1990 fellur úr gildi II. kafli laga nr. 45/1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, sbr. lög nr. 3/1989, um breyting á þeim. Jafnframt því að yfirtaka þær einföldu ábyrgðir sem Tryggingasjóður fiskeldislána hefur gefið út til handa Framkvæmdasjóði Íslands skal ábyrgðadeild fiskeldislána yfirtaka sjálfskuldarábyrgðir sem Framkvæmdasjóður hefur undirgengist gagnvart lánastofnun á grundvelli þeirra.

2. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.


Gjört í Reykjavík, 29. júní 1990.



Vigdís Finnbogadóttir.


(L. S.)



Ólafur Ragnar Grímsson