Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 190 . mál.


212. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda, með síðari breyt ingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 118. löggjafarþingi 1994.)



1. gr.


    Við 6. gr. laganna bætist nýr töluliður sem orðast svo: Í traustum erlendum verð bréfum sem skráð eru á opinberum verðbréfamörkuðum í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). Hlutfall erlendra eigna fari þó eigi umfram 10% af hreinni eign til greiðslu lífeyris og skal stjórn sjóðsins gæta eðlilegrar áhættudreif ingar í því sambandi.

2. gr.


    Á eftir 1. mgr. 19. gr. kemur ný málsgrein sem verður 2. mgr. og orðast svo:
    Nú nær lífeyrisgreiðsla ekki fjárhæð er svarar til a.m.k. eins stigs réttinda og fyrirsjá anlegt er að um sameiningu við önnur réttindi verður ekki að ræða og er þá stjórn sjóðs ins heimilt að inna greiðsluna af hendi í einu lagi samkvæmt reglum í samræmi við til lögur tryggingafræðinga.

3. gr.


    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

Ákvæði til bráðabirgða.


II.


    Stjórn sjóðsins er heimilt að gera samning við Spöl hf. um kaup víkjandi skulda bréfa, útgefnum af Speli hf., í samræmi við viljayfirlýsingu lífeyrissjóðsins, dags. 13. desember 1993.

4. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta var samið að frumkvæði stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, en í henni eiga sæti fulltrúar lífeyrissjóðasambandanna, Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og fulltrúar ríkisins.     
    Í frumvarpinu felast eftirtaldar breytingar:
     1 .     Lagt er til að sjóðurinn fái heimild til að fjárfesta í traustum erlendum verðbréfum sem skráð eru á opinberum verðbréfamörkuðum. Er þetta til samræmis við þær heimildir sem flestir lífeyrissjóðir innan lífeyrissjóðasambandanna nú hafa. Til að tryggja að sjóðurinn taki ekki of mikla áhættu á þessu sviði er gert ráð fyrir að heildareignir sjóðsins samkvæmt þessum tölulið verði ekki á hverjum tíma meiri en sem nemur 10% af hreinni eign sjóðsins til greiðslu lífeyris. Ef miðað er við reikninga sjóðsins á árinu 1993 fela þessi hlutföll í sér að heildareign sjóðsins í er lendum verðbréfum geti ekki orðið hærri en u.þ.b. 780 m.kr. Til að tryggja að sjóð urinn kaupi verðbréf á markaðskjörum og að þau séu auðseljanleg er sett það skil yrði að viðkomandi bréf séu skráð á opinberum verðbréfamörkuðum í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).
     2 .     Lagt er til að þegar sjóðfélagi hefur öðlast aðeins óveruleg réttindi í Söfnunarsjóðnum, sem ekki er hægt að sameina við önnur réttindi, sé stjórn sjóðsins heimilt að greiða þau réttindi út í einu lagi í samræmi við þær reglur sem við eiga hverju sinni. Sams konar regla og hér er lögð til hefur um langt skeið verið í reglugerðum sjóða sem starfa innan Sambands almennra lífeyrissjóða.
     3 .     Lagt er til að stjórn sjóðsins fái með bráðabirgðaákvæði heimild til þess að fjárfesta í víkjandi skuldabréfum, útgefnum af Speli hf., vegna gerðar Hvalfjarðarganga en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í desember sl. Í henni er fyrirvari þess efnis að ekki verði skrifað undir samninga um kaup á skuldabréfum nema heimild fáist til þess í lögum. Fjölmargir lífeyrissjóðir hafa undirritað slíkar viljayfirlýsingar og hefur reglugerðum nokkurra þeirra nú þegar verið breytt á þann hátt sem hér er lagt til. Eðlilegast þykir að heimildin sé í bráðabirgðaákvæði, þar sem hér er eingöngu verið að veita heimild til tiltekinnar fjárfestingar. Hún er því ekki sambærileg við þær almennu heimildir til fjárfestingar sem kveðið er á um í 6. gr.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Hér er lagt til að sjóðurinn fái heimild til að fjárfesta í erlendum verðbréfum með til greindum takmörkunum.

Um 2. gr.


    Hér er kveðið á um heimild til þess að greiða út sem eingreiðslu lífeyri sem er undir tilteknum mörkum.

Um 3. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.