Ferill 479. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 814 — 479. mál.
Frumvarp til laga
um áfengis- og vímuvarnaráð.
(Lagt fyrir Alþingi á 122. löggjafarþingi 1997–98.)
Áfengis- og vímuvarnaráð.
1. gr.
Stofna skal áfengis- og vímuvarnaráð sem heyrir undir ráðherra heilbrigðismála.
Tilgangurinn með stofnun áfengis- og vímuvarnaráðs er að efla og styrkja áfengis- og vímuvarnir, sérstaklega meðal barna og ungmenna, og sporna við afleiðingum af neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Markmiðið með starfsemi áfengis- og vímuvarnaráðs er að uppræta fíkniefnaneyslu og draga stórlega úr áfengisneyslu. Ráðið skal stuðla að samvinnu og samræmingu milli þeirra sem starfa að áfengis- og vímuvörnum, svo sem heilsugæslu og annarra heilbrigðisstofnana, félagsmálayfirvalda sveitarfélaga, löggæslu, menntakerfis, refsivörslukerfis og félagasam
Skipan áfengis- og vímuvarnaráðs.
2. gr.
Heilbrigðisráðherra skipar formann og varaformann úr ráðinu.
Verkefni áfengis- og vímuvarnaráðs.
3. gr.
1. Að hafa eftirlit með að ákvæðum laga og reglugerða um áfengis- og vímuvarnir sé framfylgt, sem og stefnu ríkisstjórnar á hverjum tíma.
2. Að vera ríkisstjórn og öðrum stjórnvöldum, þar á meðal staðbundnum nefndum sem starfa að áfengis- og vímuvörnum, til ráðuneytis um áfengis- og vímuvarnir, m.a. um þörf á meðferðarúrræðum, og gera tillögur um stefnu stjórnvalda á þessu sviði, með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna.
3. Að gera tillögur til heilbrigðisráðherra um veitingu styrkja úr Forvarnasjóði til verkefna á sviði áfengis- og vímuvarna.
4. Að beita sér fyrir samhæfingu starfa þeirra sem vinna að áfengis- og vímuvörnum, sbr. 3. mgr. 1. gr., m.a. með því að halda reglulega samráðsfundi með fulltrúum þessara aðila.
5. Að stuðla að rannsóknum á sviði áfengis- og vímuvarna, m.a. árlegum könnunum á áfengis- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna, og fylgjast með tengslum áfengis- og fíkniefnanotkunar og afbrota.
6. Að fylgjast með stöðu áfengis- og vímuvarna í grannríkjum og annast samskipti við hliðstæðar stofnanir í nágrannalöndunum.
7. Að stuðla að útgáfu fræðslugagna um áfengis- og vímuvarnir og annast gagnasöfnun í vímuefnamálum þannig að hjá ráðinu séu nýjustu og haldbærustu upplýsingar um stöðu mála. Ráðið skal gefa út ársskýrslu um starfsemi sína og stöðu áfengis- og vímuvarna.
8. Að annast önnur verkefni sem ráðherra eða ríkisstjórn felur ráðinu.
Dagleg starfsemi áfengis- og vímuvarnaráðs.
4. gr.
Árlegt ráðstöfunarfé áfengis- og vímuvarnaráðs.
5. gr.
1. Forvarnasjóð skv. 8. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi.
2. Fjárveitingar samkvæmt fjárlögum hverju sinni.
3. Framlög sem fyrirtæki eða aðrir kunna að leggja af mörkum til starfsemi á vegum ráðsins.
Reglugerðarheimild.
6. gr.
Gildistökuákvæði.
7. gr.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp til laga um áfengis- og vímuvarnaráð var lagt fram á 121. löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Frumvarpið er nú lagt fram öðru sinni með minni háttar breytingum. M.a. er fellt niður ákvæði um brottfall ákvæða í öðrum lögum og ákvæði til bráðabirgða um starfsemi áfengisvarnaráðs.
Ráðuneyti þau sem áfengis- og vímuvarnir heyra undir hafa um langt skeið staðið fyrir margvíslegum aðgerðum til að draga úr og hindra neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Í lok janúar 1996 ákvað ríkisstjórnin að tillögu dómsmálaráðherra, menntamálaráðherra, félagsmálaráðherra og heilbrigðisráðherra að samræma aðgerðir vegna ávana- og fíkni
Verkefnisstjórn dómsmálaráðherra skilaði skýrslu og tillögum í júní 1996. Þar var m.a. lagt til að ríkisstjórnin markaði sér samræmda stefnu til nokkurra ára í fíkniefnavörnum og að stofnað yrði sérstakt afbrota- og áfengis- og vímuvarnaráð.
Nefnd ráðuneyta í ávana- og fíkniefnavörnum var í kjölfarið falið að gera drög að stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málum og kanna möguleika á stofnun afbrota- og áfengis- og vímuvarnaráðs.
Í desember 1996 samþykkti ríkisstjórnin stefnuyfirlýsingu í fíkniefna-, áfengis- og tóbaks
Árið 1997 var á vegum ríkisstjórnarinnar unnið að endurskoðun á ýmsum lagaákvæðum sem varða meðferð áfengis og er frumvarp þetta hluti af þeirri endurskoðun. Frumvarpið er nú lagt fram að mestu óbreytt frá vorþingi 1997.
Samhliða frumvarpi þessu er lagt fram frumvarp til áfengislaga og frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjald af áfengi. Þar eru ákvæði um breytingar og brottfall ákvæða í öðrum lögum og eru ákvæði þess efnis því felld niður í þessu frumvarpi.
Í lagafrumvarpi þessu er kveðið á um stofnun sérstaks áfengis- og vímuvarnaráðs í þeim tilgangi að efla og styrkja áfengis- og vímuvarnir, sérstaklega meðal barna og ungmenna, og sporna við afleiðingum af neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Gert er ráð fyrir að áfengis- og vímuvarnaráð taki við verkefnum áfengisvarnaráðs ásamt fíkniefnavörnum. Á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur verið unnið að aukinni samhæfingu forvarnastarfs en margvísleg hagkvæmnisrök mæla með því að sameina áfengisvarnir öðrum fíkniefnavörnum enda hefur margsinnis með rannsóknum verið sýnt fram á tengsl áfengisneyslu og annarrar vímuefnaneyslu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að dagleg starfsemi áfengis- og vímuvarnaráðs verði sjálfstæð. Í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er í undirbúningi að sameina forvarnastarf sem unnið er á vegum ráðuneytisins undir sama þak og ná þannig fram aukinni samhæfingu og samfellu í starfi, m.a. með því að skrifstofuhald og fleiri rekstrarþættir verði sameiginlegir. Er þar auk áfengis- og vímuvarna um að ræða tóbaksvarnir, heilsueflingu, manneldismál og slysavarnir svo nokkuð sé nefnt.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Tilgangi með stofnun ráðsins er lýst í 2. mgr. en hann er að efla og styrkja áfengis- og vímuvarnir og sporna við afleiðingum af neyslu áfengis og annarra vímuefna. Starfsemi ráðs
Skaðvænlegar afleiðingar af neyslu áfengis og annarra vímuefna eru vel kunnar. Áfengis- og vímuefnaneysla er þekktur áhættuþáttur í sjálfsvígum, m.a. sjálfsvígum ungmenna. Rann
Markmiðið með starfi áfengis- og vímuvarnaráðs er því að uppræta fíkniefnaneyslu og draga stórlega úr áfengisneyslu. Ýmsum aðferðum má beita í forvörnum til að draga stórlega úr neyslu áfengis, ekki síst meðal barna og ungmenna. Samhæfing starfs og samvinna á þessu sviði er mjög mikilvæg. Markmiði um að uppræta fíkniefnaneyslu er unnt að ná ef allir þeir fjölmörgu aðilar sem vinna að áfengis- og vímuvörnum taka höndum saman og stilla saman krafta sína í öflugri samvinnu. Tengsl milli þeirra sem starfa að áfengis- og vímuvörnum eru of lítil. Þau þarf að efla og bæta. Áfengis- og vímuvarnaráði er því sérstaklega ætlað að beita sér fyrir samvinnu þessara aðila og samræmingu starfa þeirra. Hér er m.a. átt við heilsugæslu og aðrar heilbrigðisstofnanir, félagsmálayfirvöld sveitarfélaga, löggæslu, menntakerfið, refsivörslukerfið og félagasamtök. Markmiðið með stofnun ráðsins er ekki að yfirtaka verkefni þessara aðila heldur tryggja sem besta samvinnu og koma þar með í veg fyrir óþarfa tvíverknað.
Um 2. gr.
Um 3. gr.
Í 1. tölul. er fjallað um eftirlitshlutverk ráðsins, en ráðinu er ætlað að fylgja því eftir að ákvæðum laga og reglugerða um áfengis- og vímuvarnir sé framfylgt. Þá er einnig gert ráð fyrir að ráðið fylgi eftir stefnu ríkisstjórnar í þessum málaflokki á hverjum tíma.
Í 2. tölul. er fjallað um ráðgjafarhlutverk áfengis- og vímuvarnaráðs. Því er ætlað að vera ríkisstjórn, sem og öðrum stjórnvöldum, þar á meðal staðbundnum nefndum sveitarfélaga, til ráðuneytis um áfengis- og vímuvarnir, gera tillögur um stefnu á þessu sviði og byggja þar á niðurstöðum rannsókna sem fyrir liggja á hverjum tíma. Ráðinu er sérstaklega ætlað að vera til ráðgjafar um þörf á meðferðarúrræðum fyrir þá sem fjötrast hafa í ofneyslu vímu
Samkvæmt 3. tölul. er áfengis- og vímuvarnaráði ætlað að gera tillögur um veitingu styrkja úr Forvarnasjóði. Í 5. gr. frumvarpsins er gerð grein fyrir árlegu ráðstöfunarfé áfeng
Eins og áður hefur verið vikið að er tilgangur stofnunar áfengis- og vímuvarnaráðs aðal
Í 5. tölul. er áfengis- og vímuvarnaráði falið að stuðla að rannsóknum sem að gagni geta komið við áfengis- og vímuvarnir. Hér er svipað uppi á teningnum og gagnvart fræðslu
Í 6. tölul. er áfengis- og vímuvarnaráði falið að fylgjast með stöðu þessara mála í grann
Samkvæmt 7. tölul. á áfengis- og vímuvarnaráð að stuðla að útgáfu fræðslugagna um áfengis- og vímuvarnir. Hér er átt við alls kyns fræðsluefni, bæði námsefni og fræðsluefni til almennra nota. Gert er ráð fyrir að áfengis- og vímuvarnaráð geti hlutast til um að aðrir aðilar sjái um framkvæmd þessa verkefnis. Félagasamtök munu hér eftir sem hingað til hafa veigamiklu hlutverki að gegna við útgáfu fræðsluefnis um áfengis- og vímuvarnir fyrir almenning. Ákvæðið gerir þannig ráð fyrir að áfengis- og vímuvarnaráð hafi ákveðnu um
Gert er ráð fyrir að unnt verði að fela áfengis- og vímuvarnaráði önnur verkefni en þau sem talin eru upp sérstaklega í 3. gr. frumvarpsins, sbr. 8. tölul.
Um 4. gr.
Um 5. gr.
Um 6. gr.
Um 7. gr.
Fylgiskjal I.
Stefna ríkisstjórnarinnar í fíkniefna-,
áfengis- og tóbaksvörnum.
(3. desember 1996.)
(8 síður myndaðar.)
Fylgiskjal II.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um áfengis- og vímuvarnaráð.
Samkvæmt 2. gr. eru skipaðir átta menn í áfengis- og vímuvarnaráð, þremur fleiri en í nú
Í 3. gr. frumvarpsins eru talin upp nokkuð umfangsmikil verkefni áfengis- og vímu
Kostnaður við áfengisvarnaráð er áætlaður 9,1 m.kr. í fjárlögum fyrir árið 1998, og er hann greiddur af Forvarnasjóði, sbr. 8. gr. laga nr. 96/1995.
Í 5. gr. er gert ráð fyrir að áfengis- og vímuvarnaráð standi undir kostnaði við starfsemi sína af framlögum úr Forvarnasjóði, með fjárveitingum í fjárlögum hverju sinni og með framlögum sem fyrirtæki eða aðrir kunna að leggja af mörkum. Verður að gera ráð fyrir að kostnaður við ráðið verði greiddur úr Forvarnasjóði í samræmi við núverandi fjármögnun áfengisvarnaráðs. Eru tekjur sjóðsins áætlaðar samtals 55 m.kr. í fjárögum fyrir árið 1998. Kostnaður við áfengis- og vímuvarnaráð fer mjög eftir umfangi þess kynningar- og sam
Gera má gera ráð fyrir að frumvarpið hafi 14–15 m.kr. árlegan kostnað í för með sér vegna reksturs áfengis- og vímuvarnaráðs og verkefna sem það á að stuðla að. Þar til við