Ferill 731. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1437 — 731. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 19. maí.)
1. gr.
a. Í stað orðsins „tolli“ í 2. málsl. kemur: verð- og/eða magntolli.
b. Við bætast þrír nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvörðun landbúnaðarráðherra um lækkun tolls í samræmi við framangreinda hundraðshluta verð- og/eða magntolls skal ráðast af því hvort nægilegt framboð af viðkomandi vörum á hæfilegu verði er til staðar á innanlandsmarkaði. Hundraðshlutar tolls hverrar vöru skulu vera hærri eftir því sem framboð á innlendri framleiðslu er meira en lækka að sama marki eftir því sem framboð á innlendri framleiðslu minnkar. Landbúnaðarráðherra skal við ákvörðun um hundraðshluta tolls leitast við að jafnræði ríki milli innlendrar og innfluttrar framleiðslu í samkeppnislegu tilliti.
2. gr.
Viðauki IVB
Vörulýsing | Vöruliðir í tollskrá |
Heildartollkvótar í tonnum |
Lifandi eða afskorin blóm og plöntur | 0601 0602 0603 0604 |
500 |
Nýjar eða kældar garð- og gróðurhúsavörur | ||
Kartöflur | 0701 0710 |
4000 |
Tómatar | 0702 | 500 |
Laukur | 0703 | 1500 |
Kál | 0704 | 1100 |
Salat | 0705 | 1000 |
Gulrætur, næpur, rófur og aðrar rætur | 0706 | 500 |
Gúrkur | 0707 | 200 |
Ertur og belgaldin | 0708 | 100 |
Aðrar matjurtir | 0709 | 800 |
3. gr.