Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 239. máls.
138. löggjafarþing 2009–2010.
Þskj. 526  —  239. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um ráðstafanir í skattamálum (virðisaukaskattur o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og skattanefndar (HHj, LMós, MSch, ÖJ, SII).



     1.      Við 10. gr.
                  a.      Í stað „1. júlí 2010“ komi: 31. desember 2010.
                  b.      Við bætist nýr liður, svohljóðandi: Við ákvæðið bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Undanþágan á ekki við þegar skilmálabreyting verður til þess að skjalið uppfyllir skilyrði 1. málsl. 1. mgr. 24. gr. laganna.
     2.      Við 11. gr. Í stað „1. júlí 2010“ komi: 31. desember 2010.
     3.      Við 12. gr. Í stað „1. júlí 2010“ komi: 31. desember 2010.
     4.      Við 13. gr. Í stað „80%“ komi: 79,68%.
     5.      Við 14. gr.
                  a.      Í stað „80%“ í a-lið komi: 79,68%.
                  b.      B–e-liður falli brott.
     6.      Við 15. gr.
                  a.      Í stað „25%“ í a-lið komi: 25,5%.
                  b.      B-liður falli brott.
     7.      Við 16. gr. Í stað „20%“ komi: 20,32%.
     8.      Við 17. gr.
                  a.      Í stað „20%“ í a-lið komi: 20,32%.
                  b.      B-liður falli brott.
     9.      Við 18. gr. Í stað „20%“ komi: 20,32%.
     10.      20. gr. falli brott.
     11.      Á undan 40. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
                  a.      (39. gr.)
                       Í stað ártalsins „2008“ í 1. og 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI í lögunum kemur: 2009.
                  b.      (40. gr.)
                        Ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum orðast svo:
                       Þrátt fyrir ákvæði 4. málsl. 5. mgr. 36. gr. er lífeyrissjóði heimilt að eiga allt að 20% af hlutafé í samlagshlutafélögum. Nýjar fjárfestingar eða nýjar skuldbindingar í slíkum félögum, umfram mörk skv. 4. málsl. 5. mgr. 36. gr., eru ekki heimilar eftir 31. desember 2013.
     12.      Við 40. gr. Greinin verði 42. gr. og orðist svo:
                      Í stað „1. október 2010“ í 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IX í lögunum kemur: 1. apríl 2011.
     13.      Við 41. gr. Greinin orðist svo:
                      Ákvæði til bráðabirgða VIII í lögunum orðast svo:
                      Þrátt fyrir ákvæði 11. og 12. gr. er vörsluaðila séreignarsparnaðar skv. 3.–5. mgr. 8. gr. heimilt, á tímabilinu 1. janúar 2010 til 1. apríl 2011, að greiða út séreignarsparnað sem myndast hefur af viðbótariðgjaldi skv. II. kafla, eftir því sem nánar er mælt fyrir um í ákvæði þessu.
                      Heimilt er á því tímabili sem tilgreint er í 1. mgr. að hefja útborgun innstæðu séreignarsparnaðar rétthafa, ásamt vöxtum, að fjárhæð sem 1. janúar 2010 nemur samanlagt allt að 2.500.000 kr. óháð því hvort samanlagður séreignarsparnaður er í vörslu hjá fleiri en einum vörsluaðila. Skal sú fjárhæð greiðast út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum, að frádreginni staðgreiðslu samkvæmt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, í 23 mánuði frá því að beiðni um útgreiðslu er lögð fram hjá vörsluaðila. Útgreiðslutími styttist hlutfallslega ef um lægri fjárhæð en 2.500.000 kr. er að ræða.
                      Við ákvörðun fjárhæðar rétthafa til útborgunar skal draga frá hámarksfjárhæð, þ.e. allt að 2.500.000 kr., samanlagða fjárhæð þess séreignarsparnaðar sem þegar hefur verið greiddur út á grundvelli ákvæðisins eins og það hljóðaði fyrir 1. janúar 2010. Greiðslum samkvæmt eldra ákvæði skal vera lokið áður en greiðslur hefjast samkvæmt ákvæði þessu.
                      Óski rétthafi eftir útgreiðslu séreignarsparnaðar skv. 2. mgr. skal hann leggja fram umsókn þess efnis hjá viðkomandi vörsluaðila. Ef rétthafi á séreignarsparnað hjá fleiri en einum vörsluaðila skal hann gera grein fyrir því.
                      Vörsluaðili séreignarsparnaðar fer yfir umsókn rétthafa skv. 2. mgr. og hefur umsjón með útgreiðslu á séreignarsparnaði hans.
                      Skuldheimtumönnum er óheimilt að krefjast þess að skuldarar taki út séreignarsparnað sinn samkvæmt þessu ákvæði, sbr. 2. mgr. 8. gr.
                      Ríkisskattstjóri hefur eftirlit með útgreiðslum séreignarsparnaðar samkvæmt ákvæði þessu.
                      Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða nánar á um fyrirkomulag eftirlits og útgreiðslu og jafnframt heimild vörsluaðila til innheimtu sérstaks gjalds vegna umsýslu við útgreiðslu séreignarsparnaðar.
                      Útgreiðsla séreignarsparnaðar hefur ekki áhrif á bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Þá hefur útgreiðslan ekki áhrif á greiðslu húsaleigubóta skv. 9. gr. laga um húsaleigubætur, greiðslu barnabóta eða vaxtabóta skv. 68. gr. laga um tekjuskatt, atvinnuleysisbóta skv. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. 22. gr. laga nr. 22/2006.
                      Um afgreiðslu umsókna, sem borist hafa í gildistíð eldra ákvæðis og óafgreiddar kunna að vera, skal fara eftir ákvæði þessu, svo breyttu, frá og með gildistöku þess.
     14.      Við 42. gr. Greinin falli brott.
     15.      Við 43. gr. Greinin orðist svo:
                      Ákvæði 1.–6. gr. og 10.–12. gr. öðlast þegar gildi.
                      Ákvæði 7.–9. gr. og 13.–42. gr. öðlast gildi 1. janúar 2010.