Ferill 814. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1709 — 814. mál.
Frumvarp til laga
um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
(Eftir 2. umræðu, 15. júní.)
I. KAFLI
Gildissvið o.fl.
1. gr.
Lögaðili sem fellur undir 1. mgr. er í lögum þessum nefndur skuldari.
2. gr.
1. Hann eigi undir lögsögu dómstóla hér á landi skv. 4. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
2. Atvinnustarfsemi hans hafi byrjað ekki síðar en 1. desember 2019.
3. Hann hafi greitt einum manni eða fleiri laun í desember 2019 og janúar og febrúar 2020 sem svari hið minnsta til lágmarkslauna fyrir fullt starf í hverjum þessara mánaða.
4. Samanlagður áætlaður rekstrarkostnaður og skuldir hans sem falla í gjalddaga á næstu tveimur árum séu meiri en heildarfjárhæð andvirðis peningaeignar hans, innstæðna, verðbréfa og krafna á hendur öðrum.
Þá verður skuldari að uppfylla a.m.k. eitt eftirtalinna skilyrða:
1. Mánaðarlegar heildartekjur af starfseminni hafi frá 1. apríl 2020 og þar til sótt er um úrræðið lækkað um 75 hundraðshluta eða meira í samanburði við meðaltal mánaðartekna á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 29. febrúar 2020.
2. Mánaðarlegar heildartekjur síðustu þriggja mánaða áður en sótt er um úrræðið hafi lækkað um 75 hundraðshluta eða meira í samanburði við sama tímabil árið áður.
3. Fyrirsjáanlegt er að heildartekjur af starfseminni á næstu þremur mánuðum frá því að sótt er um úrræðið lækki um 75 hundraðshluta eða meira í samanburði við sama tíma árið áður.
3. gr.
Þegar atvikum er háttað eins og segir í 1. mgr. skal við mat á skilyrðum skv. 4. tölul. 1. mgr. 2. gr. líta jafnframt til peningaeignar, innstæðna, verðbréfa og krafna þess eða þeirra sem bera ábyrgð á skuldbindingum félags.
Ákvæði 2. og 3. mgr. 5. gr. og 2. og 3. mgr. 6. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. eiga að breyttu breytanda við um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
II. KAFLI
Heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
4. gr.
Beiðni um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar skal vera skrifleg og í henni greint frá eftirtöldum atriðum svo skýrt sem verða má:
1. nafni skuldarans og kennitölu,
2. upplýsingum um eignir hans og skuldir ásamt því hvort veðbönd eða önnur tryggingarréttindi hvíli á einstökum eignum og þá fyrir hvaða skuldum,
3. greinargerð skuldarans um það hvernig uppfyllt séu í einstökum atriðum skilyrði fyrir veitingu heimildarinnar skv. 1. og 2. gr.,
4. nafni, kennitölu og starfsheiti aðstoðarmanns við fjárhagslega endurskipulagningu, sem skuldari ræður í því skyni, ásamt staðfestingu hans á því að hann taki starfann að sér frá og með því tímamarki sem greinir í 6. gr. og yfirlýsingu hans um að hann uppfylli skilyrði 3. mgr. 10. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
Beiðninni skulu fylgja síðustu tveir ársreikningar skuldarans, svo og árshlutauppgjör frá sama tímabili, hafi þau verið gerð. Einnig skal fylgja beiðninni yfirlýsing löggilts endurskoðanda eða viðurkennds bókara um að bókhald skuldarans sé í lögboðnu horfi.
5. gr.
Í skilningi laga þessara, svo og laga um gjaldþrotaskipti o.fl., skoðast sem frestdagur sá dagur sem héraðsdómi berst beiðni um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Komi í kjölfar slíkrar beiðni heimild handa skuldaranum eða aðgerð gagnvart honum eftir reglum laga um gjaldþrotaskipti o.fl. gilda þessu til viðbótar fyrirmæli 2. gr. þeirra laga um hvernig frestdagur ráðist.
6. gr.
Sé krafa tryggð með lögveði þegar beiðni um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar berst héraðsdómi skal sá tími sem heimildin er í gildi vera undanskilinn lögbundnum fyrningarfresti lögveðs.
7. gr.
Synja skal beiðni um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar ef eitthvert eftirtalinna atriða á við:
1. ekki er fullnægt öllum skilyrðum 1. mgr. 1. gr., sbr. 2. gr., til að verða við beiðninni,
2. rökstuddur grunur er um að upplýsingar af hendi skuldarans séu vísvitandi rangar eða villandi,
3. beiðni skuldarans eða fylgigögnum með henni er áfátt eða sá sem skuldari hefur ráðið sér til aðstoðar telst vanhæfur til að gegna því starfi og skuldari sinnir ekki ábendingu héraðsdóms um að ráða sér annan mann til aðstoðar.
Telji héraðsdómur að skilyrði til að verða við beiðni skuldarans séu uppfyllt skal ákveðið í úrskurði að heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar sé veitt til tiltekins dags og stundar innan þriggja mánaða frá uppkvaðningu úrskurðarins þegar þing verði háð til að taka málefnið fyrir á ný. Dómari skal sjá til þess að tilkynning um að skuldari hafi fengið heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar og hver sé aðstoðarmaður hans birtist í Lögbirtingablaði á kostnað skuldara.
Úrskurði héraðsdóms samkvæmt þessari grein verður ekki skotið til æðra dóms.
8. gr.
Á fundinum skal aðstoðarmaður leggja fram tæmandi og sundurliðaða skrá um eignir og skuldir skuldarans þar sem tilgreint er áætlað verðmæti hverrar eignar og heildarfjárhæð hverrar skuldar ásamt upplýsingum um hvort veðbönd eða önnur tryggingarréttindi hvíli á einstökum eignum og þá fyrir hvaða skuldum. Á fundinum skal jafnframt greint frá ráðagerðum skuldara um framhald aðgerða til fjárhagslegrar endurskipulagningar og hvernig viðbúið sé að þeim verði lokið, svo og hvort hann muni leita eftir framlengingu á heimild sinni og þá til hve langs tíma. Aðstoðarmaður skal eftir föngum leita afstöðu lánardrottna til ráðagerða skuldarans og tillagna þeirra.
Aðstoðarmaður stýrir fundi og færir fundargerð þar sem greint skal skýrlega frá viðhorfum lánardrottna.
9. gr.
Lánardrottinn skuldarans getur sótt þinghald skv. 1. mgr. þar sem beiðni skuldarans um framlengingu heimildar er tekin fyrir og lagt þar fram skrifleg og rökstudd mótmæli gegn því að hún verði tekin til greina. Ef hvorki lánardrottinn fellur frá mótmælum sínum né skuldarinn frá beiðni sinni skal farið með ágreining þeirra eftir 166. gr. og XXIV. kafla, sbr. XXV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
Leggi skuldarinn fram beiðni skv. 1. mgr. framlengist heimild hans til fjárhagslegrar endurskipulagningar sjálfkrafa þar til hann annaðhvort fellur frá beiðninni eða héraðsdómur, eða eftir atvikum æðri dómur, kveður upp úrlausn um hana.
Beiðni skuldara um framlengingu heimildar til fjárhagslegrar endurskipulagningar skal synja ef eitthvert eftirtalinna atriða á við:
1. að svo standi á sem segir í 2. mgr. 7. gr.,
2. að skuldarinn hafi gert ráðstafanir í andstöðu við ákvæði 13.–15. gr.,
3. að talið verði í ljósi aðstæðna að ekki hafi verið staðið eðlilega að aðgerðum til fjárhagslegrar endurskipulagningar á þeim tíma sem heimild til hennar hefur verið fyrir hendi,
4. að framlenging heimildarinnar muni ekki þjóna tilgangi,
5. að framlenging á heimildinni sé óþörf sökum þess að árangur hafi þegar náðst af henni, sbr. 18. gr.,
6. að tekjur af rekstri skuldarans hafi aftur náð a.m.k. 75 hundraðshlutum af tekjum á viðmiðunartímabili skv. 2. gr.
Úrskurði héraðsdóms um synjun um framlengingu heimildar verður ekki skotið til æðra dóms.
Telji héraðsdómur að skilyrði til að verða við beiðni skuldarans séu uppfyllt skal ákveðið í úrskurði að heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar sé framlengd til tiltekins dags og stundar þegar þing verði háð til að taka málefnið fyrir á ný innan sex mánaða frá þeim degi sem beiðnin var lögð fram.
Aðstoðarmaður skal án tafar tilkynna öllum þekktum lánardrottnum skuldarans á sannanlegan hátt um niðurstöðu dómstóla um beiðni skuldarans.
10. gr.
Telji héraðsdómur skilyrði til að verða við beiðni skuldarans skal ákveðið í úrskurði að heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar sé framlengd til tiltekins dags og stundar ekki síðar en þremur mánuðum frá þeim degi sem beiðnin var lögð fram.
Framlengja má heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar oftar en tvisvar, en þó þannig að hún standi aldrei lengur samanlagt en í eitt ár, sbr. þó 5. mgr. 20. gr. og 4. mgr. 21. gr.
11. gr.
1. Sá tími er á enda sem heimildinni hefur verið markaður og beiðni um framlengingu hennar kemur ekki fram eða ekki er mætt af hálfu skuldarans í þinghaldi við lok áður veittrar heimildar.
2. Héraðsdómi berst skrifleg tilkynning skuldarans um að hann afsali sér heimildinni.
3. Úrskurður gengur um að skuldaranum sé veitt heimild til greiðslustöðvunar eða nauðasamningsumleitana eða að bú hans sé tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt kröfu hans sjálfs.
4. Skilanefnd fær löggildingu til félagsslita og hefur heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar fellur einnig niður við uppkvaðningu úrskurðar héraðsdóms um höfnun beiðni um framlengingu heimildarinnar eða úrlausnar æðra dóms um slíka höfnun, svo og þegar lokatímabili heimildarinnar lýkur.
Ef heimild fellur niður eftir 1. eða 2. mgr. falla sjálfkrafa niður fundir með lánardrottnum skuldara og þinghöld í tengslum við heimildina sem áður hefur verið ákveðið að halda.
Aðstoðarmanni ber án tafar að tilkynna öllum þekktum lánardrottnum skuldarans á sannanlegan hátt ef heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar fellur niður eftir ákvæðum þessarar greinar.
12. gr.
Aðstoðarmanni ber að krefjast þess við héraðsdóm að heimild verði felld niður ef hann telur atvik vera slík sem í 1. mgr. segir eða skuldara ekki hafa sinnt skyldum sínum skv. 3. mgr. 17. gr.
Krafa skv. 1. eða 2. mgr. skal vera skrifleg og rökstudd. Þau gögn skulu fylgja henni sem hún er studd við.
Berist héraðsdómi krafa samkvæmt framansögðu skal án tafar boða skuldara og þann sem hana hefur uppi til þinghalds með sannanlegum hætti og hæfilegum fyrirvara. Ef skuldarinn sækir ekki þing og gagnaðili krefst þess skal héraðsdómur þegar í stað kveða á þeim grunni upp úrskurð um að fella niður heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Sæki skuldarinn á hinn bóginn þing og mótmæli kröfu gagnaðila skal farið með ágreining þeirra eftir 167. gr. og XXIV. kafla, sbr. XXV. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl., en þó þannig að kærufrestur á úrskurði um niðurfellingu heimildar er einn sólarhringur og frestar kæra réttaráhrifum úrskurðar þar til máli lýkur fyrir æðra dómi.
Aðstoðarmanni ber án tafar að tilkynna öllum þekktum lánardrottnum skuldarans á sannanlegan hátt ef heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar fellur niður eftir ákvæðum þessarar greinar.
III. KAFLI
Réttaráhrif heimildar til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
13. gr.
Samþykki skv. 1. mgr. skal ávallt liggja fyrir áður en ráðstöfun er gerð, en aðstoðarmaður getur dregið það til baka allt fram að því að skuldarinn verður bundinn gagnvart þriðja manni af ráðstöfun á grundvelli þess. Samþykkið getur hvort heldur varðað eina eða fleiri tilteknar ráðstafanir eða falið í sér almennt samþykki til að verja fjármunum innan tiltekinna marka til að standa straum af reglubundnum eða nauðsynlegum útgjöldum til að halda áfram rekstri skuldarans. Ber skuldaranum að gera grein fyrir ráðstöfunum í skjóli slíks almenns samþykkis með reglubundnu millibili samkvæmt ákvörðun aðstoðarmanns.
Aðstoðarmanni ber eftir föngum að hafa eftirlit með fjárreiðum skuldarans til að koma í veg fyrir að hann brjóti gegn ákvæðum 1. og 2. mgr.
14. gr.
Svo lengi sem skuldarinn nýtur heimildarinnar má ekki verja peningaeign hans, peningum sem fást við ráðstöfun eigna eða réttinda, arði af eignum eða réttindum eða tekjum sem hann aflar í atvinnurekstri til annarra þarfa en að:
1. standa straum af nauðsynlegum útgjöldum til að halda áfram rekstri hans,
2. greiða skuldir að því leyti sem það er heimilt skv. 15. gr.,
3. greiða þóknun aðstoðarmanns og annan kostnað af undirbúningi og framkvæmd endurskipulagningarinnar,
4. standa að aðgerðum til að koma í veg fyrir verulegt tjón.
15. gr.
Svo lengi sem skuldari nýtur heimildar til fjárhagslegrar endurskipulagningar má hann ekki stofna til skulda eða annarra skuldbindinga eða leggja höft á eignir sínar eða réttindi nema það sé nauðsynlegt til að halda áfram atvinnurekstri hans eða varna verulegu tjóni. Komi til gjaldþrotaskipta á búi skuldarans og markist frestdagur við þau af beiðni um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar getur skuld sem stofnað er til á þennan hátt notið stöðu í réttindaröð skv. 4. tölul. 110. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
16. gr.
Á meðan heimild skuldarans stendur má ekki taka bú hans til gjaldþrotaskipta nema hann krefjist þess sjálfur, en á því tímabili verður ekki virk skylda hans til að bera fram slíka kröfu skv. 2. mgr. 64. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Ekki má heldur kyrrsetja eignir hans, taka þær í löggeymslu, gera fjárnám í þeim eða ráðstafa þeim með nauðungarsölu. Þá verður ekki komið fram gagnvart skuldara aðfarargerð til efnda á skyldu hans til annars en peningagreiðslu.
Stjórnvöld mega ekki neyta þvingunarúrræða í garð skuldara sem nýtur heimildar til fjárhagslegrar endurskipulagningar vegna vanefnda hans á skuldbindingu við ríkið eða sveitarfélag. Við veitingu heimildarinnar falla niður áhrif slíkrar þvingunar sem stjórnvald hefur komið á áður en heimildin var fengin.
IV. KAFLI
Ráðstafanir til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
17. gr.
Þegar aðstoðarmaður tekur til starfa skal hann án tafar kanna hag skuldarans eftir föngum til að staðreyna réttmæti upplýsinga sem hann veitti við öflun heimildar til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Aðstoðarmaður skal einnig gera nauðsynlegar ráðstafanir þegar í stað til að koma á eftirliti með fjárreiðum skuldarans, sbr. 3. mgr. 13. gr.
Skuldaranum er skylt að veita aðstoðarmanni sérhverjar upplýsingar um fjárhagsmálefni sín og rekstur sem eftir er leitað, svo og ótakmarkaðan aðgang að öllum gögnum um þau efni. Við fjárhagslega endurskipulagningu gilda að öðru leyti ákvæði 81. og 82. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl.
18. gr.
Ef ekki stendur svo á sem í 1. mgr. segir skal í aðgerðum til fjárhagslegrar endurskipulagningar leitast við að ná frjálsum samningum um það efni milli skuldarans og lánardrottna hans, þar á meðal um nauðsynlega gjaldfresti af skuldum hans og eftir atvikum aðra eftirgjöf, til að tryggja rekstrarhæfi starfsemi skuldarans til frambúðar eftir að heimild hans samkvæmt lögum þessum lýkur. Ef skuldari óskar eftir því eða lánardrottinn krefst þess skal aðstoðarmaður taka eftir þörfum þátt í slíkum samningsumleitunum, en að öðrum kosti er skuldara skylt að greina aðstoðarmanni frá framvindu þeirra. Takist að ná samningum um þessi efni getur skuldari með samþykki aðstoðarmanns látið þar við sitja án þess að gera frekari ráðstafanir á þeim tíma sem heimildin stendur. Skal aðstoðarmaður kynna það lánardrottnum skuldarans.
19. gr.
20. gr.
1. að felldir verði niður dráttarvextir og innheimtukostnaður af vanskilum á öllum gjaldföllnum skuldum eða afborgunum af þeim en í staðinn komi eftir atvikum vextir sem gjaldfallin fjárhæð hefði borið samkvæmt samningi eða lögum ef í skilum hefði verið,
2. að gjaldfrestur á öllum skuldum, þar á meðal af einstökum afborgunum af þeim, sem ekki voru gjaldfallnar fyrir 1. mars 2020, verði lengdur um sem svarar þeim tíma sem ætla má að heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar muni í heild standa,
3. að gjalddagi allra skulda, þar á meðal einstakra afborgana af þeim, án tillits til þess hvort þær voru gjaldfallnar þegar heimild var veitt til fjárhagslegrar endurskipulagningar, verði færður aftur um jafnlangan tíma, allt að þremur árum, með óbreyttum lánskjörum að öðru leyti,
4. að niður falli allar kröfur sem skipað yrði í réttindaröð eftir 114. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. ef bú skuldarans hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Ráðstöfunum skv. 1. mgr. má beita þótt kröfuhafi njóti veðréttar eða annarra tryggingarréttinda fyrir kröfu sinni í eign skuldarans. Að öðru leyti verður slíkum ráðstöfunum aðeins beint að kröfum sem teldust samningskröfur skv. 1. mgr. 29. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. ef skuldarinn hefði á frestdegi óskað eftir heimild til að leita nauðasamnings án undangenginna gjaldþrotaskipta.
Ráðstöfunum skv. 1. mgr. verður að beina jafnt að öllum lánardrottnum skuldarans sem þær geta átt við um. Heimilt er þó að binda ráðstafanir skv. 1., 2. og 3. tölul. 1. mgr. við þá lánardrottna sem njóta samningsbundinna veðréttinda fyrir kröfum sínum í einni og sömu eign skuldarans eða undanskilja þá alla eða haga þeim ráðstöfunum á annan veg en gagnvart öðrum lánardrottnum.
Vilji skuldari grípa til ráðstafana samkvæmt framansögðu skal hann leggja fyrir umsjónarmann frumvarp að nauðasamningi um þær ásamt skriflegu og rökstuddu erindi um það áður en einn mánuður stendur eftir af heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Ber umsjónarmanni að taka rökstudda afstöðu til erindisins svo fljótt sem verða má og tilkynna lánardrottnum skuldarans um hana á sannanlegan hátt. Það eitt að umsjónarmaður hafni erindinu raskar ekki gildi heimildar skuldarans.
Taki umsjónarmaður erindi skuldarans til greina skal litið svo á að í þeirri afstöðu felist jafngildi þess að á sama tíma hefði frumvarp skuldarans að nauðasamningi verið samþykkt með atkvæðagreiðslu eftir VIII. kafla laga um gjaldþrotaskipti o.fl. við nauðasamningsumleitanir án undangenginna gjaldþrotaskipta. Skal þá skuldarinn krefjast staðfestingar þess nauðasamnings fyrir héraðsdómi, en eftir því sem átt getur við skal farið með þá kröfu eftir ákvæðum IX. kafla sömu laga. Takist ekki að ljúka þeirri málsmeðferð innan þess tíma sem heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar var markaður með úrskurði héraðsdóms skal heimildin sjálfkrafa teljast framlengd þar til endanleg niðurstaða hefur fengist fyrir dómi um kröfu skuldarans.
21. gr.
Umsjónarmaður skal ákveða svo fljótt sem verða má hvort leitað verði nauðasamnings á grundvelli frumvarps skuldarans, en því skal umsjónarmaður hafna ef einhver þau atvik sem talin eru í 1. mgr. 38. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. eru fyrir hendi að mati hans. Það eitt að umsjónarmaður hafni ósk skuldarans um nauðasamningsumleitanir raskar ekki gildi heimildar hans til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Verði umsjónarmaður við ósk skuldarans um nauðasamningsumleitanir skal umsjónarmaður án tafar tilkynna það héraðsdómi, þar sem úrskurður gekk um heimild skuldarans til fjárhagslegrar endurskipulagningar, og lánardrottnum hans, sem þegar er vitað um, og senda þeim jafnframt frumvarp að nauðasamningi ásamt tilkynningu skv. 1. mgr. Skulu þá hefjast nauðasamningsumleitanir og gilda um þær, svo og um staðfestingu nauðasamnings og réttaráhrif hans, ákvæði 44.–63. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. Gegnir þá umsjónarmaður samkvæmt lögum þessum hlutverki umsjónarmanns með nauðasamningsumleitunum. Að því leyti sem reglur 3. þáttar laga um gjaldþrotaskipti o.fl. miða tiltekin áhrif við þann dag sem úrskurður gekk um heimild til að leita nauðasamnings skal varðandi nauðasamning samkvæmt þessari grein miða þau við þann dag sem úrskurður gekk um heimild skuldarans til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
Verði nauðasamningsumleitunum ekki lokið eða eftir atvikum málsmeðferð til staðfestingar nauðasamnings innan þess tíma sem heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar skuldarans var markaður með úrskurði héraðsdóms skal heimildin sjálfkrafa teljast framlengd þar til endanleg niðurstaða hefur fengist um hvort nauðasamningur komist á fyrir skuldarann.
22. gr.
V. KAFLI
Gildistaka o.fl.
23. gr.
Beiðni skuldara skv. 4. gr. um heimild til fjárhagslegrar endurskipulagningar verður að berast héraðsdómi fyrir 1. janúar 2021.
24. gr.
a. Á eftir orðunum „vegna nauðasamningsins“ í 4. tölul. 1. mgr. 28. gr. laganna kemur: sbr. þó ákvæði til bráðabirgða II.
b. 5. mgr. 33. gr. laganna verður svohljóðandi:
Þótt nauðasamningur geymi ákvæði um breytta greiðsluskilmála kröfu samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II fer lánardrottinn ekki með atkvæðisrétt um nauðasamning nema að því leyti sem hann hefur afsalað sér tryggingarrétti fyrir kröfu sinni, sbr. 2. mgr. 28. gr.
c. Við 1. mgr. 36. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: að hvaða leyti breyta eigi greiðsluskilmálum kröfu sem samningsveð er fyrir í eign skuldarans, sbr. ákvæði til bráðabirgða II, hver sú eign sé, til hverra krafna sú breyting taki og hvað í henni felist.
d. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 44. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Slík tilkynning skal jafnframt send lánardrottnum, sem vitað er um og fara með kröfu sem trygging er fyrir í eign skuldarans, ef í frumvarpi skuldarans er gert ráð fyrir að þær kröfur sæti breytingum samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II.
e. Við 2. málsl. 2. mgr. 46. gr. laganna bætist: og hvort og þá hverjar breytingar skuldarinn vilji gera á greiðsluskilmálum kröfunnar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II.
f. Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:
1. Í stað orðanna „skrám sínum skv. 1. og 2. mgr.“ í 4. tölul. 2. mgr. kemur: skrá sinni skv. 1. mgr.; og í stað orðsins „þeim“ í sama tölulið kemur: henni.
2. Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: skrá sinni skv. 2. mgr. 46. gr., hvað liggi fyrir um viðhorf lánardrottna sem tilgreindir eru í skránni til óska skuldarans um breytta greiðsluskilmála og hvernig ætla megi að slíkar breytingar eða afsal þessara lánardrottna á réttindum skv. 2. mgr. 28. gr. geti haft áhrif á hæð samningsboðs skuldarans og getu hans til að standa við það.
g. Við 58. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Enn fremur getur héraðsdómari hafnað kröfu skuldarans um staðfestingu nauðasamnings ef sá krefst sem nýtur samningsveðs fyrir kröfu í eign skuldarans og ekki er fullnægt skilyrðum ákvæðis til bráðabirgða II fyrir breytingu á greiðsluskilmálum kröfu þess lánardrottins eða slíkar breytingar á kröfum annarra rétthafa í sömu eign gætu leitt til þess að tryggingarréttur hans rýrnaði að mun.
h. 2. mgr. 60. gr. laganna verður svohljóðandi:
Þegar nauðasamningur er kominn á bindur hann lánardrottna og þá sem í stað þeirra koma um samningskröfur þeirra og þær kröfur sem samningsveð er fyrir í eign skuldarans og nauðasamningurinn hefur áhrif á. Efndir kröfu í samræmi við ákvæði nauðasamnings hafa sömu áhrif og ef hún hefði verið efnd eftir upphaflegu efni sínu.
i. Í stað orðsins „samningskröfu“ í fyrra sinnið í 1. mgr. 62. gr. laganna kemur: kröfu sem samningurinn hefur áhrif á; og í stað sama orðs í síðara sinnið kemur: kröfu.
j. Í stað orðsins „samningskrafna“ í 1. mgr. 63. gr. laganna kemur: krafna.
k. Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Í nauðasamningi samkvæmt lögum um tímabundnar heimildir til fjárhagslegrar endurskipulagningar má kveða á um breytingu á greiðsluskilmálum kröfu sem samningsveð er fyrir í eign skuldarans, þar á meðal að lengja lánstíma eða fresta gjalddaga á greiðslu hluta skuldarinnar eða hennar allrar í allt að 18 mánuði, en slík breyting verður þá að ganga jafnt yfir alla sem njóta samningsveðs í sömu eign. Breytingu sem þessa má ekki gera nema að því marki sem nauðsynlegt er til að skuldari fái til ráðstöfunar fé til að efna samningskröfur eftir ákvæðum nauðasamnings.