Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 136, 120. löggjafarþing 21. mál: lyfjalög (gildistaka ákvæða um stofnun lyfjabúða o.fl.).
Lög nr. 118 31. október 1995.
Þingskjal 136, 120. löggjafarþing 21. mál: lyfjalög (gildistaka ákvæða um stofnun lyfjabúða o.fl.).
Lög nr. 118 31. október 1995.
Lög um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um umsóknir um markaðsleyfi“ í 2. tölul. 3. mgr. kemur: Útgáfu markaðsleyfa.
- Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um umsóknir“ í 3. tölul. 3. mgr. kemur: Afgreiðslu umsókna.
- Í stað orðanna „Umsögn til ráðherra um leyfi“ í 4. tölul. 3. mgr. kemur: Útgáfu leyfa.
- Við bætist ný málsgrein, er verður 4. mgr., svohljóðandi:
2. gr.
Í stað orðanna „gefur heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið út“ í fyrri málslið 10. gr. laganna kemur: annast heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið útgáfu á.3. gr.
Í stað orðanna „1. nóvember 1995“ í 4. málsl. 2. mgr. 45. gr. laganna, sbr. 1. gr. laga nr. 112/1994, sbr. 1. gr. laga nr. 122/1994, kemur: 15. mars 1996.4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða í lögunum:- Í stað orðanna „1. júní 1995“ í 2. og 3. málsl. 2. tölul. kemur: 15. mars 1996.
- Í stað orðanna „1. nóvember 1995“ í 3. tölul. kemur: 15. mars 1996.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 30. október 1995.