Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 619, 133. löggjafarþing 220. mál: lögheimili og skipulags- og byggingarlög (óheimil skráning lögheimilis í frístundabyggð).
Lög nr. 149 15. desember 2006.
I. KAFLI
Breytingar á lögum um lögheimili, nr. 21/1990, með síðari breytingum.
Síðari málsliður 3. mgr. 1. gr. laganna raskar ekki skráningu lögheimilis í húsnæði í skipulagðri frístundabyggð sem færð hefur verið í þjóðskrá fyrir 1. janúar 2007 en ef viðkomandi einstaklingur eða fjölskylda hans flytur úr húsnæðinu fellur réttur til skráningar lögheimilis þar niður. Með fjölskyldu er átt við hjón, fólk í staðfestri samvist eða skráðri sambúð og ólögráða börn þeirra.
II. KAFLI
Breytingar á skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Gildistaka og lagaskil.
Þingskjal 619, 133. löggjafarþing 220. mál: lögheimili og skipulags- og byggingarlög (óheimil skráning lögheimilis í frístundabyggð).
Lög nr. 149 15. desember 2006.
Lög um breytingu á lögum um lögheimili, nr. 21/1990, með síðari breytingum, og skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 3. mgr. 1. gr. laganna bætist nýr málsliður er hljóðar svo: Sama gildir um húsnæði í skipulagðri frístundabyggð.2. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða er hljóðar svo:Síðari málsliður 3. mgr. 1. gr. laganna raskar ekki skráningu lögheimilis í húsnæði í skipulagðri frístundabyggð sem færð hefur verið í þjóðskrá fyrir 1. janúar 2007 en ef viðkomandi einstaklingur eða fjölskylda hans flytur úr húsnæðinu fellur réttur til skráningar lögheimilis þar niður. Með fjölskyldu er átt við hjón, fólk í staðfestri samvist eða skráðri sambúð og ólögráða börn þeirra.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Á eftir orðskýringunni Framkvæmdaleyfi kemur ný orðskýring er hljóðar svo: Frístundabyggð: Svæði fyrir frístundahús, þ.e. byggð sem ekki er ætluð til fastrar búsetu.
- Á eftir orðinu „íbúðir“ í orðskýringunni Landnotkun kemur: frístundahús.
4. gr.
Á eftir orðinu „íbúðarbyggð“ í 2. málsl. 2. mgr. 9. gr. laganna kemur: frístundabyggð.5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði 1. gr. laganna gildir þó ekki um afgreiðslu tilkynninga um flutning lögheimilis í húsnæði í skipulagðri frístundabyggð sem berast Þjóðskrá fyrir 1. janúar 2007.Samþykkt á Alþingi 8. desember 2006.