Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1988, 139. löggjafarþing 100. mál: húsnæðismál (uppboðsíbúðir á kaupleigu og lánsheimildir Íbúðalánasjóðs).
Lög nr. 134 27. september 2011.
Þingskjal 1988, 139. löggjafarþing 100. mál: húsnæðismál (uppboðsíbúðir á kaupleigu og lánsheimildir Íbúðalánasjóðs).
Lög nr. 134 27. september 2011.
Lög um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað 3. málsl. 1. mgr. 19. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: ÍLS-veðbréf getur verið verðtryggt með vísitölu neysluverðs, sbr. lög um vísitölu neysluverðs, eða óverðtryggt. Skal það bera vexti skv. 21. gr.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 21. gr. laganna:- Á eftir orðunum „og verðbóta“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: ef við á.
- Í stað 1. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Vextir af verðtryggðum ÍLS-veðbréfum skulu vera óbreytanlegir allan lánstímann en vextir af óverðtryggðum ÍLS-veðbréfum geta verið breytilegir. Íbúðalánasjóður skal setja reglur um vaxtakjör óverðtryggðra lána.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. september 2011.