Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1057, 141. löggjafarþing 595. mál: kosningar til Alþingis (kjördæmi, kjörseðill).
Lög nr. 8 25. febrúar 2013.
Þingskjal 1057, 141. löggjafarþing 595. mál: kosningar til Alþingis (kjördæmi, kjörseðill).
Lög nr. 8 25. febrúar 2013.
Lög um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum (kjördæmi, kjörseðill).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 6. gr. laganna:- Orðið „Bæjarhreppur“ í 1. tölul. fellur brott.
- Orðið „Grímseyjarhreppur“ í 2. tölul. fellur brott.
- Í stað orðanna „Arnarneshreppur, Hörgárbyggð“ í 2. tölul. kemur: Hörgársveit.
- Orðin „Sveitarfélagið Álftanes“ í 4. tölul. falla brott.
2. gr.
Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 52. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef framboðslistar í kjöri eru fleiri en sautján skulu listarnir prentaðir í láréttum röðum. Þess skal gætt að í röðunum sé sem jafnastur fjöldi lista.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. febrúar 2013.