Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 976, 148. löggjafarþing 456. mál: ábúðarlög (úttekt og yfirmat).
Lög nr. 43 23. maí 2018.
Þingskjal 976, 148. löggjafarþing 456. mál: ábúðarlög (úttekt og yfirmat).
Lög nr. 43 23. maí 2018.
Lög um breytingu á ábúðarlögum, nr. 80/2004 (úttekt og yfirmat).
1. gr.
Við 42. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Úttektarmenn skulu birta málsaðilum niðurstöðu úttektar eins fljótt og unnt er.2. gr.
Í stað orðanna „frá dagsetningu úttektar“ í 1. mgr. 44. gr. laganna kemur: frá því að málsaðilum hefur verið birt niðurstaða úttektar.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. maí 2018.