51. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 11:00


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 11:00
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 11:00
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 11:00
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 11:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 11:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 11:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 11:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 11:00
Páll Magnússon (PállM), kl. 11:00
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV), kl. 11:00

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 695. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 11:00
Fundurinn var fjarfundur. Allir nefndarmenn og gestir nefndarinnar tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 12. mars sl. Vegna tæknilegra vandamála hófst fundurinn ekki á tilsettum tíma.
Kl. 11:20. Til fundarins komu Sturla Pálsson, Rannveig Júníusdóttir og Ragnar Árni Sigurðarson frá Seðlabanka Íslands.
Kl. 11:58. Halldór B. Þorgeirsson, Ásdís Kristjánsdóttir og Davíð Þorláksson frá Samtökum atvinnulífsins.
Kl. 12:35 - 12:49. Hádegishlé.
Kl. 12:50. Skúli Eggert Þórðarson og Jón L. Björnsson frá Ríkisendurskoðun.
Kl. 13:30. Ásta Fjeldsted og Konráð Guðjónsson frá Viðskiptaráði Íslands.
Kl. 14:14. Henný Hinz frá ASÍ.
Kl. 15:02. Katrín Júlíusdóttir og Ingvi Kristinsson frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
Gestirnir kynntu umsagnir sínar um frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni þeirra.

2) Önnur mál Kl. 16:08
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 16:09
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 16:10