83. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 4. júní 2020
kl. 13:30
Mætt:
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 13:30Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 13:41
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 13:30
Ágúst Ólafur Ágústsson (ÁÓÁ), kl. 13:30
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 13:42
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 13:30
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 13:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 13:30
Páll Magnússon (PállM), kl. 13:44
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 13:30
Inga Sæland og Ágúst Ólafur Ágústsson tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Páll Magnússon vék af fundi kl. 14:15. Haraldur Benediktsson vék af fundi kl. 14:23 og kom til baka 15:48.
Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson
Allir gestir nefndarinnar tóku þátt í fundinum með fjarfundabúnaði.
Bókað:
1) 735. mál - heimild til að stofna opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu Kl. 13:30
Nefndin ræddi um frumvarpið án gesta.
2) 841. mál - fjáraukalög 2020 Kl. 14:22
Til fundarins komu Kristinn Þórðarson frá Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda og Nanna Elísa Jakobsdóttir frá Samtökum iðnaðarins. Þau veittu munnlega umsögn um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar og svöruðu spurningum nefndarmanna um það efni.
Kl. 15:14 Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands. Hún kynnti umsögn sambandsins og svaraði spurningum nefndarmanna um efni hennar.
3) 842. mál - opinber fjármál Kl. 15:30
Henný Hinz frá Alþýðusambandi Íslands. Hún kynnti umsögn sambandsins og svaraði spurningum nefndarmanna um efni hennar.
4) Önnur mál Kl. 15:58
Fleira var ekki gert.
5) Fundargerð Kl. 15:59
Fundargerð 82. fundar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 16:00