Samantekt um þingmál

Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri

392. mál á 143. löggjafarþingi.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að draga úr umstangi og skriffinnsku vegna erlendrar fjárfestingar.

Helstu breytingar og nýjungar

Nefnd um beina erlenda fjárfestingu verði lögð niður og tilkynningarskylda um erlendar fjárfestingar taki eingöngu til þeirra tilvika þar sem sérstakar takmarkanir gilda um þær.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34/1991.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Umsagnir (helstu atriði)

Fáar umsagnir með litlum athugasemdum.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt nær óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Starfshópur skipaður af iðnaðarráðherra (2010). Tillögugerð um stefnu stjórnvalda varðandi erlenda fjárfestingu.

Fjárfestingarvaktin (2013). Fjárfestingarvaktin: Tillögur til ráðherra um úrbætur á samkeppnishæfni Íslands varðandi beina erlenda fjárfestingu og eflingu markaðs- og kynningarstarfs í því skyni.



Síðast breytt 19.05.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.