Samantekt um þingmál

Seðlabanki Íslands

390. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að styrkja fjárhagsleg samskipti ríkissjóðs og Seðlabankans og treysta fjárhagslegt sjálfstæði bankans.

Helstu breytingar og nýjungar

Sett er fram skýr regla um ráðstöfun hagnaðar af rekstri bankans til ríkissjóðs en þar hefur ýmislegt þótt óljóst.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001.
  • Endurflutt: Seðlabanki Íslands, 524. mál (fjármála- og efnahagsráðherra) á 143. þingi (31.03.2014)

Kostnaður og tekjur

Skuldsetning ríkissjóðs lækkar um 26 milljarða kr. og með því dregur úr vaxtakostnaði um 1,3 milljarða kr.

Umsagnir (helstu atriði)

Engar umsagnir voru um þetta mál.

Afgreiðsla

Samþykkt nær óbreytt.


Síðast breytt 15.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.