Samantekt um þingmál

Virðisaukaskattur og tekjuskattur

432. mál á 150. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að greiða fyrir orkuskiptum í samgöngum með því að innleiða nýjar og lengja núverandi tímabundnar skattaívilnanir vegna bifreiða, bifhjóla, léttra bifhjóla og reiðhjóla sem ganga fyrir vistvænni orku og vegna búnaðar til að hlaða rafgeyma rafknúinna bifreiða. Að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis með tilheyrandi útblæstri gróðurhúsalofttegunda og auka hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í orkunotkun landsmanna vegna samgangna.

Helstu breytingar og nýjungar

Frumvarpið felur í sér tíu skattkerfisbreytingar. Varða níu þeirra breytingar á ákvæðum virðisaukaskattslaga, þ.á.m. bráðabirgðaákvæði XXIV um heimild til niðurfellingar á virðisaukaskatti af nýjum rafmagns-, vetnis og tengiltvinnbifreiðum. Lagt er til að lengdur verði gildistími heimilda til að fella niður eða lækka virðisaukaskattsinnheimtu af ökutækjum sem nýta vistvæna orku. Nýmæli er að bifhjól, létt bifhjól og reiðhjól sem knúin eru raforku eða vetni verða tímabundið undanþegin virðisaukaskatti. Frumvarpið varðar einnig niðurfellingu virðisaukaskatts að hluta eða í heild vegna kaupa og uppsetningar á hleðslubúnaði í nýju og eldra íbúðarhúsnæði. Einnig er gert ráð fyrir nýrri heimild í lögum um tekjuskatt til að fyrna að fullu á kaupári, niður að niðurlagsverði, ökutæki sem gengur fyrir metani, metanóli, raforku eða vetni og notað er að öllu leyti í atvinnuskyni í skattskyldri starfsemi lögaðila eða sjálfstætt starfandi einstaklings.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.
Lög um tekjuskatt, nr. 90/2003.
  • Skylt mál: Fjöleignarhús, 468. mál (félags- og barnamálaráðherra) á 150. þingi (11.12.2019)

Kostnaður og tekjur

Frumvarpið hefur ekki í för með sér útgjöld fyrir ríkissjóð en óhjákvæmilega munu skattstyrkirnir sem það felur í sér leiða til tekjutaps hins opinbera. Ekki er lagt mat á það í frumvarpinu hversu mikið tekjutapið gæti orðið.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum en þeim helstum að fjárhæðarmörk ívilnunar vegna tengiltvinnbifreiða lækka í nokkrum áföngum og gildistími hennar var framlengdur til 31. desember 2022. Einnig var hámarksfjöldi þeirra bíla sem notið geta ívilnunarinnar hækkaður í 15.000. Þá var hámark á fjölda þeirra innfluttu bifreiða í almenningsakstri sem nýta eingöngu metan, metanól, rafmagn eða vetni sem orkugjafa hækkað í 120.

Aðrar upplýsingar

Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum 2018–2030

Sáttmáli Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis

Þingsályktun um aðgerðaáætlun um orkuskipti nr. 18/146



Síðast breytt 28.01.2020. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.