Samantekt um þingmál

Fjárhagslegar viðmiðanir o.fl.

164. mál á 152. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að innleiða Evrópureglugerð nr. 2021/168 um breytingu á reglugerð nr. 2016/1011 að því er varðar undanþágu tiltekinna stundargengisviðmiðana þriðju landa og tilgreiningu á endurnýjun tiltekinna viðmiðana sem látið hefur verið af, og um breytingu á reglugerð nr. 648/2012.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagðar eru til breytingar á lögum sem fjalla um vísitölur á fjármálamarkaði til að forðast óvissu um hvað komi í stað vísitalna sem hætt verður að birta eftir lok árs 2021. Þá er lagt til að framlengd verði til ársloka 2022 undanþága frá lögum um upplýsingagjöf til fjárfesta. Breytingarnar endurspegla nýlegar breytingar á Evrópugerðum sem lögin byggjast á.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021.
Lög um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, nr. 55/2021.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.

Aðrar upplýsingar

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/168 frá 10. febrúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/1011 að því er varðar undanþágu tiltekinna stundargengisviðmiðana þriðju landa og tilgreiningu á endurnýjun tiltekinna viðmiðana sem látið hefur verið af, og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 648/2012.


Síðast breytt 31.01.2022. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.