Ferill 146. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 146 . mál.


Sþ.

153. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna.

Frá Guðmundi H. Garðarssyni.



    Hvernig hefur upplýsingaskyldu lífeyrissjóða um árlegt áætlað ráðstöfunarfé verið fullnægt með tilliti til réttindastöðu lífeyrissjóðsfélaga gagnvart lánsmöguleikum hjá Húsnæðisstofnun ríkisins samkvæmt lögum þar um?
    Beðið er um upplýsingar fyrir árin 1986, 1987, 1988 og 1989, sundurliðað eftir sjóðum.



Skriflegt svar óskast.