Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 167 . mál.
Sþ.
252. Svar
viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Friðriki Sophussyni um breytingar á lánskjaravísitölu.
1.–2. spurning:
Breytingar lánskjaravísitölu (LV) og nýrrar vísitölu (NV) árin 1984–1988:
LV NV
1. jan. 1984 til 1. jan. 1985 18,9% 18,0%
1. jan. 1985 til 1. jan. 1986 35,6% 40,0%
1. jan. 1986 til 1. jan. 1987 14,7% 17,3%
1. jan. 1987 til 1. jan. 1988 22,2% 28,7%
Spá 1. jan. 1988 til 1. jan. 1989 19,2% 17,9%
1. jan. 1984 til 1. jan. 1988 126,1% 149,2%
Spá 1. jan. 1984 til 1. jan. 1989 169,3% 193,9%
3. spurning:
Heildargreiðsla afborgana, vaxta og verðbóta af 1 millj. kr. láni útgefnu 1. jan. 1984 með 5% vöxtum og 5 jöfnum árlegum afborgunum (upphæðir í kr.):
Verðtryggt Verðtryggt
með LV með NV Mismunur
1. jan. 1985 297.281 294.917 2.364
1. jan. 1986 386.950 396.312 –9.362
1. jan. 1987 425.473 445.319 –19.846
1. jan. 1988 497.470 548.180 –50.710
1. jan. 1989 566.206 617.092 –50.886
Þar eð laun hafa hækkað mikið á árunum 1984–1988 og samanburðurinn gefur því aðra mynd en ef hann væri tekinn yfir lengra tímabil fylgir til fróðleiks samsvarandi samanburður fyrir árin 1980–1983, svo og samantekt fyrir árin 1980–1988:
Varðandi 1. og 2. spurningu:
Breytingar lánskjaravísitölu (LV) og nýrrar vísitölu (NV) árin 1980–1983:
LV NV
1. jan. 1980 til 1. jan. 1981 52,6% 57,7%
1. jan. 1981 til 1. jan. 1982 47,6% 49,2%
1. jan. 1982 til 1. jan. 1983 60,5% 53,7%
1. jan. 1983 til 1. jan. 1984 73,4% 60,2%
1. jan. 1980 til 1. jan. 1984 526,7% 479,5%
1. jan. 1980 til 1. jan. 1988 1317,0% 1343,8%
Spá 1. jan. 1980 til 1. jan. 1989 1589,6% 1602,7%
Varðandi 3. spurningu.
Heildargreiðsla afborgana, vaxta og verðbóta af 1 millj. kr. láni útgefnu 1. jan. 1980 með 5% föstum vöxtum og 4 jöfnum árlegum afborgunum (upphæðir í kr.):
Verðtryggt Verðtryggt
með LV með NV Mismunur
1. jan. 1981 245.840 254.100 –8.260
1. jan. 1982 350.290 366.130 –15.840
1. jan. 1983 542.220 542.580 –360
1. jan. 1984 905.190 836.980 68.210
- Neðanmálsgrein: 1
- Tölur þessar byggjast m.a. á launavísitölu til greiðslujöfnunar sem Hagstofan birtir.