Ferill 17. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1989. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 17 . mál.
Sþ.
17. Fyrirspurn
til ráðherra Hagstofunnar um eignarskatt á Norðurlöndum.
Frá Hreggviði Jónssyni.
1. Er eignarskattur af íbúðarhúsnæði í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð mismunandi eftir eignaformi, þ.e. einkaeign, félagaeign eða opinberri eign?
2. Hversu hár er eignarskattur í hverju þessara landa fyrir sig og með hvaða hætti er hann reiknaður?
3. Hvernig er eignarskattsstofn íbúðarhúsnæðis ákvarðaður af hinu opinbera í þessum löndum? Eru til opinberar skrár um allt íbúðarhúsnæði í þessum löndum?
Skriflegt svar óskast.