Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 280 . mál.


Sþ.

510. Fyrirspurn


til sjávarútvegsráðherra um fiskiskip í smíðum erlendis.

Frá Eiði Guðnasyni.


1.     Hve mörg fiskiskip eru nú í smíðum erlendis fyrir íslenska aðila?
2.     Hver er stærð þessara skipa?
3.     Til hvaða veiða eru þessi skip ætluð?
4.     Til hvaða útgerðarstaða munu þessi skip fara?



Skriflegt svar óskast.