Ferill 140. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 140 . mál.


Nd.

873. Nefndarálit



um frv. til l. um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Árna Þ. Árnason, skrifstofustjóra í iðnaðarráðuneytinu, Jón B. Jónasson, skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, Halldór Þ. Kristjánsson, skrifstofustjóra í iðnaðarráðuneytinu, Guðmund Eiríksson, þjóðréttarfræðing í utanríkisráðuneytinu, Guðmund Pálmason frá Orkustofnun og Jón Arnalds borgardómara.
    Eftir ítarlega umfjöllun um málið og viðræður við fyrrgreinda menn mælir nefndin með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerðar eru tillögur um á sérstöku þingskjali. Flestar breytingarnar miða að því að gera ákvæði frumvarpsins skýrari en meginefnisbreytingin er sú að hugtakið „auðlind“ í merkingu frumvarpsins er bundið við allar lífrænar og ólífrænar auðlindir hafsbotnsins aðrar en lifandi verur. Nefndin vill þó leggja áherslu á að hún telur nauðsynlegt að hugað verði að sérstöku frumvarpi er fjalli um réttindi til rannsókna og hagnýtingar á sjávargróðri og verum sem lifandi eru á, í og undir hafsbotninum eða í tengslum við hann.

Alþingi, 4. apríl 1990.



Hjörleifur Guttormsson, form., frsm.


Kristín Einarsdóttir, fundaskr.


Guðmundur G. Þórarinsson.


Friðrik Sophusson, með fyrirvara.


Birgir Ísl. Gunnarsson, með fyrirvara.


Páll Pétursson.


Rannveig Guðmundsdóttir.