Ferill 509. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1989–90. – 1059 ár frá stofnun Alþingis.
112. löggjafarþing. – 509 . mál.


Sþ.

1107. Breytingartillaga



við till. til þál. um að flýta framkvæmdum við jarðgöng á Vestfjörðum.

Frá fjárveitinganefnd.



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að flýta skuli framkvæmdum við fyrirhugaða jarðgangagerð á Vestfjörðum umfram það sem fyrirhugað er í fyrirliggjandi vegáætlun. Skal stefnt að því að framkvæmdir hefjist árið 1991 og að þeim ljúki á 4–5 árum. Undirbúningsrannsóknum verði hagað í samræmi við þetta.
    Ríkissjóði skal heimilað að taka lán til framkvæmdanna, allt að 1.300 m.kr., á árunum 1990–1994 samkvæmt nánari ákvæðum vegáætlunar og lánsfjárlaga hverju sinni. Lán ásamt verðbótum endurgreiðast af fé til stórverkefna samkvæmt vegáætlun. Útgjöld vegna vaxta og lántökukostnaðar umfram það, sem sparast í viðhaldskostnaði á fjármögnunarskeiði framkvæmdanna, greiðist úr ríkissjóði sem sérstakt byggðarframlag.
    Ríkisstjórnin skal láta fram fara könnun á möguleikum til þess að afla sérstaklega lánsfjár og/eða tekna til að standa straum af kostnaði vegna ákvörðunar um að flýta framkvæmdum og skila áliti til næsta Alþingis.