Ferill 63. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 63 . mál.


Sþ.

65. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.

Frá Danfríði Skarphéðinsdóttur og Málmfríði Sigurðardóttur.



     Hvers vegna hætti félagsmálaráðuneytið að endurnýja samninga við stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna 1. júní sl.?
     Hvers mega stuðningsfjölskyldur og fjölskyldur fatlaðra vænta 1. nóv. þegar núverandi millibilsástandi lýkur?