Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 92 . mál.


Ed.

179. Frumvarp til laga



um ábyrgð gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum.

(Eftir 2. umr. í Ed., 20. nóv.)



1. gr.


     Ríkisstjórninni er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að ábyrgjast hluta Íslands, allt að fjárhæð 8.050.000 SDR, gagnvart Norræna fjárfestingarbankanum vegna fjárfestingarlána og fjárfestingarábyrgða til verkefna utan Norðurlanda.

2. gr.


     Ríkisstjórninni er heimilt að ganga frá samningi við Norræna fjárfestingarbankann um ábyrgð skv. 1. gr.

3. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.