Ferill 99. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 99 . mál.


Ed.

413. Frumvarp til laga



um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra.

(Eftir 2. umr. í Ed., 20. des.)



I. KAFLI


Markmið og gildissvið.


1. gr.


     Markmið laga þessara er að stuðla að jafnrétti heyrnarlausra til þjónustu sem víðast í þjóðfélaginu á grundvelli táknmáls heyrnarlausra.

2. gr.


     Hlutverk Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra er að annast:
     rannsóknir á íslensku táknmáli,
     kennslu táknmáls,
     táknmálstúlkun,
     aðra þjónustu.
     Um skipan þjónustunnar skal kveðið á í reglugerð.
     Stofnunin skal hafa samstarf við svæðisstjórnir um málefni fatlaðra, Greiningar - og ráðgjafarstöð ríkisins, Heyrnleysingjaskólann, Heyrnar - og talmeinastöð Íslands, Námsgagnastofnun og aðra opinbera aðila varðandi málefni er snerta starfsemi þeirra. Sama gildir um samstarf við félög áhugamanna.

II. KAFLI


Stjórnun.


3. gr.


     Menntamálaráðherra skipar stofnuninni fimm manna stjórn til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara:
     einn fulltrúa tilnefndan af Félagi heyrnarlausra,
     einn fulltrúa tilnefndan af Foreldra - og styrktarfélagi heyrnardaufra,
     einn fulltrúa tilnefndan af félagsmálaráðherra,
     einn fulltrúa tilnefndan af heilbrigðisráðherra og
     skipar menntamálaráðherra einn fulltrúa án tilnefningar. Skal hann vera formaður.
    Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.

4. gr.


     Menntamálaráðherra skipar forstöðumann til fimm ára í senn að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar. Hann á sæti á fundum stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétti og sér um framkvæmd á ákvörðunum hennar. Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar.

5. gr.


     Stjórn stofnunarinnar ræður annað starfsfólk að fengnum tillögum forstöðumanns í samræmi við starfsmannaheimildir.

6. gr.


     Samskiptamiðstöð gerir fjárhags - og framkvæmdaáætlun til allt að fimm ára. Stjórn stofnunarinnar staðfestir áætlanir og fylgist með framkvæmd þeirra. Menntamálaráðherra getur, að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar, sett gjaldskrá fyrir þá þjónustu sem samskiptamiðstöðin veitir.

7. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi. Lögin skal endurskoða innan fjögurra ára frá gildistöku þeirra.