Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 114 . mál.


Nd.

955. Nefndarálit



við frv. til l. um breyt. á vegalögum, nr. 6/1977.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið á fjórum fundum. Mál þetta er endurflutt og lágu fyrir umsagnir þriggja aðila frá síðasta þingi: Félagi hrossabænda, Skipulagi ríkisins og Vegagerð ríkisins. Til viðbótar barst nefndinni umsögn frá Landssambandi hestamannafélaga.
    Þrír umsagnaraðilar, Skipulag ríkisins, Landssamband hestamannafélaga og Félag hrossabænda, mæla með því að frumvarpið verði lögfest. Skipulagsstjóri ríkisins telur frumvarpið ótvírætt spor í rétta átt en telur æskilegt að gera frumvarpið ítarlegar úr garði. Vegagerð ríkisins leggur hins vegar til að ákvæði núgildandi laga haldist óbreytt, þ.e. að Vegagerðin skuli aðstoða samtök hestamanna við gerð reiðvega. Nefndin tekur undir það sjónarmið að af skipulags- og öryggisástæðum sé rétt að fela Vegagerð ríkisins að sjá um gerð reiðvega meðfram þjóðvegum, svo og um reiðvegi milli sveita eða landshluta. Í því sambandi bendir nefndin á að einnig í menningarsögulegu tilliti er æskilegt að halda við eða varðveita fornar reiðleiðir. Þá bendir nefndin á að Alþingi er nú situr hefur samþykkt ályktun um að samgönguráðherra sé falið að gera sérstaka reiðvegaáætlun í samvinnu við tiltekna aðila.
    Nefndin telur rétt að athugað verði hver eigi að vera hlutur Vegagerðar ríkisins við gerð reiðvega og hvernig haga skuli samstarfi Vegagerðarinnar, Skipulags ríkisins og sveitarfélaga í þessum málum. Með vísan til þessa leggur nefndin til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.

Alþingi, 13. mars 1991.



Hjörleifur Guttorms

son,

form., frsm.

Guðni Ágústsson,


fundaskr.

Ólafur Þ. Þórðarson.


Friðjón Þórðarson.

Árni Gunnarsson.

Matthías Á. Mathiesen.


Kristín Einarsdóttir.