Framhaldsfundir Alþingis

60. fundur
Mánudaginn 06. janúar 1992, kl. 13:31:00 (2511)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Hinn 3. janúar sl. var gefið út svohljóðandi forsetabréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 6. janúar 1992, kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 3. janúar 1992.

Vigdís Finnbogadóttir.



Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

    Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs, þakka liðna árið, býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.