Staða íslensks landbúnaðar með tilliti til þróunar viðræðna um nýjan GATT-samning o.fl.

61. fundur
Þriðjudaginn 07. janúar 1992, kl. 21:39:00 (2580)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (andsvar) :
     Herra forseti. Mér finnst ekki nægilega rökstudd krafa hv. 6. þm. Norðurl. e. í málinu og ég vil þá reyna að leiðbeina svolítið í því. Hæstv. ráðherra sagði áðan að hann mundi greina hæstv. utanrrh. nánar frá þessum málum og það mundi þá væntanlega skýrast fyrir mér og hv. þm. sem ég nefndi og vil þá vonast til að hann spyrji rækilega út í hvað það sé sem hæstv. viðskrh. ætlar að greina hæstv. utanrrh. frá en neitar að greina okkur frá hér og nú.