Egill Jónsson
:
Herra forseti. Ég tek undir það, sem hefur komið fram hjá ýmsum ræðumönnum, að þessi umræða hefur verið málefnaleg og gagnleg. Ég veitti því sérstaklega athygli sem fram kom í ræðu hæstv. viðskrh. þegar hann komst þannig að orði að eitt af því sem ríkisstjórnin mundi hafa til hliðsjónar við ákvarðanatöku væru þær umræður sem hér hefðu farið fram. Ég hlýt að taka undir þetta og fagna þessum ummælum ef alvara fylgir máli.
Ég hef sagt frá því áður á Alþingi og fundið að því að það væri ríkt og vaxandi í fari ráðherra að stikla fram hjá vilja Alþingis, meira að segja þó að skýr löggjöf væri fyrir hendi. Þar af leiðandi þarf ég ekkert að leyna því að ég hef haft af því áhyggjur að ríkisstjórnin mundi fara sínar leiðir í þessu máli án sérstaklega mikils samráðs við Alþingi Íslendinga. Þess vegna var það mér ánægjuefni þegar hæstv. viðskrh. gaf þessa yfirlýsingu. Hann nefndi fleiri dæmi sem ríkisstjórnin mundi líta á og gat þess að það yrði samráðsfundur ráðherra Norðurlanda að því er mig minnir þann 11. þ.m. um þetta sama mál. Þessi yfirlýsing fannst mér líka vera framför. Ég vona svo sannarlega að ráðherrann standi við þessi orð.
En ég get hins vegar ekki leynt því að það setti að mér hroll þegar hæstv. viðskrh. fór að gefa yfirlýsingar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar því að þar taldi hann fyrst upp að ríkisstjórnin mundi lýsa yfir stuðningi við viðleitni þeirrar forustu sem hefði unnið þessi samningsdrög. Ég held nefnilega að það séu afskaplega fáir alþingismenn, sem hafa talað á Alþingi í dag, sem hafa lýst yfir stuðningi við þessi samningsdrög. Meira að segja þvert á móti, lýst því yfir með skýrum hætti að í því horfi sem þau væru í væru þau ekki brúkhæf.
Hér kemur svo viðskrh. og segir að ríkisstjórnin ætli að lýsa yfir stuðningi við góða viðleitni hjá þeim forustumanni sem fyrir þessu hefur verið. Þessi orð samrýmast ekki þeirri niðurstöðu sem fyrir liggur í þessari umræðu. Önnur hvor þessara mikilvægu yfirlýsinga sem viðskrh. gaf er þess vegna markleysa og ég hlýt að vekja sérstaka áherslu á einmitt því misræmi sem hér gengur fram af máli viðskrh. og mótmæla því að það verði lagt til sem sérstakur áhersluþáttur í svari ríkisstjórnarinnar að hér sé um að ræða samningsdrög sem með einum eða öðrum hætti gætu að óbreyttu orðið ásættanleg fyrir Íslendinga.