Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

62. fundur
Miðvikudaginn 08. janúar 1992, kl. 15:19:00 (2603)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
     Ég vil enn og aftur upplýsa hv. 5. þm. Vestf. um að ég mun hér eftir sem hingað til reyna að framfylgja lögum sem í gildi eru. Eins og hann og allir almennir borgarar í þessu landi ef þeir verða misrétti beittir reyni ég að leiðrétta minn málstað. Ég mun hjálpa hv. 5. þm. Vestf. ef hann telur sig hafa verið misrétti beittur gagnvart lögum að hann nái þar rétti sínum. ( Gripið fram í: Það var spurningin um svar.) Umræðu um dagskrármálið er frestað.