Páll Pétursson
:
Frú forseti. Hæstv. forsrh. hefur greint frá því, ekki einu sinni, ekki tvisvar heldur þrisvar héðan úr þessum ræðustól, að hér sé um að ræða formlegan fyrirvara ríkisstjórnar Íslands við tilboði Dunkels. Hæstv. forsrh. er fullmektugur talsmaður ríkisstjórnar Íslands. Vangaveltur hæstv. viðskrh. um þetta efni eru einskis virði. Látum því orð hans sem vind um eyru þjóta. Orð forsrh. skulu standa og í því trausti get ég fyrir mitt leyti lokið þessari umræðu.