Samþykkt ríkisstjórnarinnar um GATT

64. fundur
Föstudaginn 10. janúar 1992, kl. 15:43:00 (2655)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Ég geri mér grein fyrir því að minn tími mun vera útrunninn. En ég tel ekki að það hafi komið neinn ágreiningur fram í mínu máli og hæstv. viðskrh. Textinn --- eins og ráðherrann benti á --- er mjög ljós og skýr. Auðvitað er hér um að ræða athugasemdir, samningskröfu og fyrirvara við það tilboð sem herra Dunkel hefur lagt fram.