Hagræðingarsjóður sjávarútvegsins

64. fundur
Föstudaginn 10. janúar 1992, kl. 19:15:00 (2665)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Forseti vill leyfa sér að geta þess að miðað er við að umræðunni ljúki kl. 7.30, á sama tíma og fyrir sólarhring þegar hv. 4. þm. Norðurl. e. var hér í ræðustól og þingmaðurinn virti svo drengilega. Forseti væntir þess að hann taki einnig tillit til þess núna.