Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 15:02:00 (2782)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Í áætlun Eimskipafélags Íslands er gert ráð fyrir vikulegum siglingum frá Eyjafirði til Austurlands. Ég tek undir áhyggjur hv. þm. yfir því sambandsleysi sem verið hefur milli Norðausturlands og Austurlands. Það vekur athygli í ljósi þess sem hv. þm. sagði að í þeirri vegáætlun, sem hann lagði fram á síðasta þingi, var gert ráð fyrir því að láta sómasamlegan veg milli þessara landsfjórðunga bíða næstu aldar.