Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 15:05:00 (2785)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
     Hæstv. forseti. Mér komu á óvart ummæli hv. þm. Í fyrsta lagi hef ég skýrt mjög greinilega frá því að Benedikt Jóhannesson er formaður stjórnarnefndar. Hins vegar skil ég ekki hvað hann átti við með því að Geir Gunnarsson vissi ekkert hvað verið væri að bauka, eins og voru hin smekkvísu orð þingmannsins. Hann var að gefa í skyn hluti sem ég mun að sjálfsögðu ræða við hann og spyrja við hvað hv. þm. eigi.