Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

68. fundur
Fimmtudaginn 16. janúar 1992, kl. 17:54:00 (2808)

     Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég ætla enn að minna á að heildarlækkun útgjalda til lífeyristrygginga skv. frv. hæstv. fyrrv. heilbr.- og trmrh. var 1.674 millj. kr. og nettólækkun á útgjöldum almannatryggingakerfisins var 154 millj. kr. Þetta er aðeins, virðulegi forseti, lítið upprifjunarnámskeið fyrir virðulega þm. Framsfl.