Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það er engin launung á því að Lúðvík Jósepsson er kjörinn fulltrúi Alþb. í bankaráði Landsbankans. Það hefur aldrei verið neitt feimnismál fyrir okkur og við höfum ekki talið það óeðlilegt enda höfum við ekki verið að lýsa yfir sams konar viðhorfum og hæstv. forsrh. hefur verið að hampa hér í sumar, haust og vetur. Hins vegar vek ég athygli á því að seta Lúðvíks Jósepssonar í bankaráði Landsbankans, ef ég man rétt, hófst ekki fyrr en hann hafði lokið afskiptum sínum af stjórnmálum. Hann hafði þá hætt störfum á Alþingi og dregið sig í hlé frá öllum opinberum afskiptum af stjórnmálum. Ég held ég fari alveg rétt með að hann hafi ekki tekið sæti í bankaráði Landsbankans fyrr en í þann mund sem hann var að ljúka langri og farsælli setu sinni á Alþingi.
Kjartan Gunnarsson er hins vegar einn af nánustu trúnaðarmönnum núv. hæstv. forsrh. í Sjálfstfl., maður í blóma lífsins og á eftir langan feril á vettvangi stjórnmálanna ef að líkum lætur. Það er því nokkur munur á þessum tveimur ákvörðunum ef á þetta eitt er litið.