Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Það er athyglisvert hvað hæstv. ráðherrar eru viðkvæmir í dag, sérstaklega hæstv. forsrh. Það má varla gera nokkurn skapaðan hlut hér í stólnum svo að hann taki það ekki illa upp. Það eru greinilega erfiðir tímar. Ástæða þess að ég kvaddi mér hljóðs um þingsköp var sú að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson spurði um það hve lengi ætti að halda umræðunum áfram og forseti upplýsti að halda ætti áfram til kl. 7. Þá var eingöngu staddur í salnum hæstv. heilbrrh. og enginn ráðherra sjáanlegur í hliðarherbergjum. Það var því ekkert óeðlilegt við það, þegar forseti hafði tilkynnt að halda ætti áfram umræðunni, að spurt væri um það hvað liði viðvist eða fjarveru þeirra ráðherra sem þyrftu að vera hér. Ég fagna því að hæstv. fjmrh. kom í salinn en ég vakti athygli á því að hann hefði farið burtu til þess að sinna útvarpsviðtölum og vissi ekkert um það hvort hann var væntanlegur aftur eða ekki. Vonandi er það þannig að spyrjast megi fyrir um það hverjar fyrirætlanir ráðherranna séu og hvort þeir séu væntanlegir eða ekki án þess að það sé talið meiri háttar afbrot.
Ég vil hins vegar segja við hæstv. fjmrh., þó að það sé rétt að hann hefur setið hér í salnum, að þá er nú spurning hvort það er eðlilegt að þingmenn þurfi að taka upp úr vasa sínum vasaútvarp til þess að hlusta á svör hæstv. ráðherra við þeim spurningum sem bornar hafa verið fram í þingsalnum. Vegna þess að mér vitanlega hefur hæstv. ráðherra ekki svarað því hér í þingsalnum sem snertir það minnisblað um stöðvun á launagreiðslum til starfsmanna ríkisins sem hann var að ræða við formann BSRB, Ögmund Jónasson, á Rás 2 hjá Ríkisútvarpinu upp úr klukkan fimm í dag. Auðvitað væri æskilegra að ráðherrarnir gæfu sér tíma til þess að svara þeim spurningum og athugasemdum varðandi þessi mál sem vikið er að þeim í þingsalnum en geri það ekki á þann veg að helst þurfi þingmenn að hlusta á útvarp um leið og þeir eru í þingsalnum til þess að geta hlýtt á svör ráðherranna. Hér hafa þingmenn gert þetta atriði að umtalsefni. Mér vitanlega hefur ráðherrann ekki svarað því í þingsalnum og sjálfsagt líður þessi vika án þess að hann svari því hér.