Virðulegi forseti. Þessi þingskapaumræða er komin út á sérkennilegar brautir og ég ætla ekki að blanda mér í síðustu orðaskipti hæstv. forsrh. og hv. þm. Páls Péturssonar. En hins vegar er mikilvægt að greiða fyrir umræðum og ég ítreka það, sem hér hefur komið fram, að til þess að umræðan geti haldið áfram með eðlilegum hætti og hæstv. fjmrh. verði hlíft við því að menn endurtaki eitthvað af því sem áður var sagt er nauðsynlegt að a.m.k. þrír hæstv. ráðherrar svari fyrirspurnum sem til þeirra var beint fyrir helgina. Þar vil ég ítreka aftur við hæstv. fjmrh. í fyrsta lagi það sem hefur verið vikið að í dag og ég vil segja að svör hans undir þingskapaumræðunni varðandi þetta atriði voru satt að segja furðuleg. Ég hefði áhuga á því, a.m.k. undir andsvörum, að geta rætt það aðeins við hæstv. fjmrh. því að samkvæmt minni þekkingu á framkvæmd mála í fjmrn. voru svör hæstv. ráðherra fullkomlega út í hött.
Ég beini því því til hæstv. fjmrh. að hann taki til máls í umræðunni fljótlega nú á eftir og svari þessu þar þannig að hægt sé að beita andsvaraforminu því að ekki viljum við fara að beita því í þingskapaumræðunni.
Í öðru vil ég óska eftir því að hæstv. menntmrh. svari þeim spurningum sem hv. þm. Svavar Gestsson beindi til hans, en einnig sérstaklega því atriði hvernig hann hyggst framkvæma hinn flata niðurskurð vegna þess að hæstv. forsrh. lýsti því alveg skýrt yfir í
umræðum um lánsfjárlögin að ríkisstjórnin hefði í engu breytt þeirri afstöðu sinni að flatur niðurskurður ætti að koma allur til framkvæmda á þessu ári. Engu að síður hefur því verið lýst yfir af hálfu menntmrn. að menntmrn. sé eingöngu að vinna að því að framkvæma helminginn af flata niðurskurðinum á þessu ári. Þetta grundvallaratriði verður að fást upplýst í umræðunni áður en hún getur haldið áfram, hvort yfirlýsing hæstv. forsrh. er rétt eða hvort yfirlýsingar aðstoðarmanns menntmrh. eru réttar.
Í þriðja lagi vil ég ítreka þær spurningar til hæstv. heilbrrh. sem hv. þm. Svavar Gestsson flutti. Það mundi mjög greiða fyrir umræðu í dag og flýta fyrir henni ef þessir þrír hæstv. ráðherrar gætu mjög snemma núna fyrir hádegi komið upp og svarað þessum fyrirspurnum þannig að aðrir ræðumenn þyrftu ekki að víkja að þeim atriðum aftur eða ítreka sýknt og heilagt óskir um að þessu sé svarað. Þess vegna vildi ég beina þeim tilmælum til þessara þriggja ráðherra að þeir gerðu a.m.k. þessum þremur þáttum skil í umræðunni fyrir hádegi.