Kristín Einarsdóttir
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Þetta þykja mér mikil tíðindi og hefði verið ágætt að fá að sjá það lögfræðilega álit sem þarna er á ferðinni vegna þess að mér þykir þetta alveg með ólíkindum. Ákvæði í fjárlögum eru eins fáránleg varðandi framhaldsskólann og varðandi svo margt annað. Í þessu tilviki virðist það skoðun einhverra að hægt sé að takmarka aðgang að framhaldsskólum bara vegna þess að það sé kosið að spara. Það verður fróðlegt að vita hvort þessar hugmyndir eru á lofti. Ég vona að þær séu það ekki og það sé rétt að ráðherrasveinninn hafi þarna verið að tala um sínar prívatskoðanir en ekki ráðherrans eða ráðuneytisins og þykir mér þá að þeir fari að líta stórt á sitt hlutverk ef þeir eru farnir að viðra svo stórpólitísk mál í fjölmiðlum. Þykir mér tíðindum sæta ef hægt er að takmarka aðgang að framhaldsskólum og þætti fróðlegt að vita með hvaða aðferðum það ætti að vera, hvort það ætti þá að vera eftir biðraðakerfi eða hvernig ætti að reyna að takmarka aðgang að framhaldsskólum miðað við þau lög sem eru í gildi í landinu.