Fjarvist þingmanns

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 11:36:00 (2933)

     Geir H. Haarde :
     Virðulegi forseti. Út af þessari furðulegu athugasemd hv. 2. þm. Vestf., sem virðist halda stundatöflu yfir þingmenn og þeirra fjarvistir, þá vildi ég láta það koma fram að hv. 1. þm. Vestf., Guðjón A. Kristjánsson, er fjarverandi með fullkomlega lögmæt forföll sem hann tilkynnti stjórn þingflokksins í gær. Það hefur láðst að óska eftir fjarvistarleyfi og ég tek það algerlega á mínar herðar og geri það hér með að biðja um fjarvistarleyfi fyrir hans hönd. Hann er forfallaður.