Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 13:04:00 (2949)

     Ingibjörg Sólrún Gísladóttir :
     Virðulegur forseti. Ég skil að ýmsu leyti mjög vel það sem liggur til grundvallar þessari tillögu. Auðvitað er mikilvægt að tryggja sem best viðhald opinberra stofnana. Ég get hins vegar ekki fyllilega fellt mig við þetta þar sem það liggur fyrir að í framtíðinni verður skilgreining á fötlun víðtækari heldur en nú er. Þar af leiðandi munu fleiri hópar sækja inn í þennan sjóð og sjóðurinn taka á sig aukin verkefni. Ég mun því ekki greiða atkvæði um þessa tillögu.