Hæstv. forseti. Hér er á ferðinni eitt fárra atriða þar sem tókst að koma vitinu fyrir hv. stjórnarliða og lagfæra augljósa ágalla og hættur sem í þessu máli fólust eins og það var lagt fram, jafnilla og það var undirbúið. Nú er það svo að hæstv. heilbrrh. hefur ekki talað í þessari umræðu nema til þess að bera sakir á aðra þingmenn og varpa fram ásökunum, dylgjum og rógi af ýmsu tagi. Það liggur ekkert fyrir um það hvort í brtt. eins og þær komu frá hæstv. ríkisstjórn gerðu í raun ráð fyrir því að samtímis því að taka á sig þessa skerðingu gætu elli- og örorkulífeyrisþegar misst barnalífeyrinn. Ég held að það sé ástæða til þess, úr því að hæstv. heilbrrh. eru svona létt sporin hingað í ræðustólinn, að hann geri okkur grein fyrir því hvort það var hans vísvitandi vilji og ásetningur að taka ,,item`` barnalífeyrinn af mönnum með þessum skerðingum eða ekki. Ég tók að vísu eftir
því að hann studdi þessa brtt. en eftir sem áður gæti það staðið að hann hefði með fullri meðvitund lagt þetta ákvæði í formi upphaflegu brtt. svona fram að ætlunin hafi verið að skerða barnalífeyrinn einnig. Ég tel nauðsynlegt að þetta komi hér fram. En að sjálfsögðu styðjum við í minni hlutanum þessar lagfæringar sem okkur tókst í þessu tilviki eins og í nokkrum fleirum að koma inn í frv. og ég segi því já, hæstv. forseti.