Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Þegar skilið var við þessa umræðu átti hæstv. fjmrh. eftir að svara nokkrum spurningum. Og í umræðu hér um annað mál, mig minnir fyrir helgi, gaf hæstv. forsrh. það til kynna að fjmrh. mundi við þessa umræðu svara þessum atriðum þannig að ég átti satt að segja von á því að hæstv. fjmrh. mundi kveðja sér hér hljóðs og svara þessum spurningum en umræðu lyki ekki.