Lánsfjárlög 1992

71. fundur
Þriðjudaginn 21. janúar 1992, kl. 18:09:00 (3005)

     Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
     Svarið við síðustu spurningunni er einfaldlega að ég býst við að núverandi bankaráðsmenn, þar á meðal hv. formaður Framsfl., hafi þann skilning á þörfum ríkissjóðs að hann beiti sér fyrir því að fara að slíkum tilmælum, enda er varaformaður þess sama flokks yfirlýstur einn af bestu vinum ríkissjóðs.