Steingrímur J. Sigfússon
(um þingsköp)
:
Hæstv. forseti. Allra fyrst vil ég nefna þessar nýju aðferðir við að gefa mönnum orðið um þingsköp eins og hér hefur verið sagt um áratuga skeið á þinginu. Nú heitir það að menn séu að kveðja sér hljóðs um gæslu þingskapa og nú síðast um framkvæmd þingskapa. Ég er að biðja um orðið um þingsköp eins og gert hefur verið um áratuga skeið á Alþingi.
Ég ætla að spyrja hæstv. forseta í fyrsta lagi að því hvað hann og forsetadeildin hugsa sér um fundahaldið hér í kvöld. Dagskrá þingsins er að verða með nokkuð skrautlegum hætti dag eftir dag. T.d. virðist vera komin á einhver regla að byrja fundi kl. 10 eða 11 á morgnana og færast þeir fram um hálftíma á dag að því er virðist. Ég veit ekki hvernig þetta endar. Er ætlunin að halda þinghaldinu svona áfram? Svo gerast þau tíðindi að haldið er áfram fundi allan kvöldmatartímann. Ég hef setið á þingi hátt í níu ár og svo lengi sem ég man hefur kvöldmatartíminn nánast aldrei verið lagður undir samfelld fundahöld. Ef ekki hefur tekist að ljúka fundi um hálfáttaleytið er nánast án undantekninga gert hlé. Hér er því verið að brjóta í blað og ég hlýt að spyrja hæstv. forseta á þessu stigi málsins hvað sé áformað að gera vegna þess að aðstæður í umræðunni hafa gerbreyst.
Hv. 17. þm. Reykv. hefur heldur betur hellt bensíni á bál umræðnanna með stórfelldum árásum á talsmenn annarra flokka og hefur þar uppi háttu hæstv. heilbrrh. sem ég mun ekki hafa talað alveg nógu virðulega um að mati þingflokksformanns Alþfl. Hæstv. heilbrrh. er svo einstaklega virðuleg persóna að það þarf að vanda sig alveg sérstaklega að vera nægilega hátignarlegur í orðavali þegar maður ræðir við hann. Sem sagt, ég lét ekki alveg nógu virðuleg ummæli falla um hæstv. heilbrrh. En hann er greinilega fordæmi formanns þingflokks Alþfl. í þessum efnum því að formaður þingflokks Alþfl. gerði nokkurn veginn nákvæmlega það sama og heilbrrh. fyrr í dag, grjóthélt . . . --- nú verð ég að vanda mig --- sagði ekki eitt einasta orð í umræðunni fyrr en heilbrrh. í atkvæðagreiðslum að umræðum loknum en formaður þingflokks Alþfl. í lok þess sem menn héldu að væri 3. umr. um Hagræðingarsjóðinn. Þá allt í einu fellur sprengjan. Kemur ekki upp hv. 17. þm. Reykv. veifar gömlum viðtölum og ummælum héðan og þaðan sem einhverjir talsmenn flokkanna fyrr á öldinni hafa látið falla, rýkur í að tala fyrir hönd Kvennalistans sem að vísu er alveg ljóst að hv. 17. þm. Reykv. hefur mjög mikinn áhuga á. Það hefur komið fram áður í umræðum að hann talar mjög mikið fyrir stefnu Kvennalistans og vill gæta hagsmuna hans. Sú saga hefur flogið um bæinn --- a.m.k. í ,,Ekki-fréttum`` --- að þetta sé næsti flokkur sem hv. 17. þm. Reykv. hyggi á inngöngu í og með aðstoð læknis ef ekki vill betur til og ber þar allt að sama brunni, þessum mikla áhuga hv. þm. á stefnu Kvennalistans. En það er eiginlega deild sem er meira innbyrðis í viðskiptum milli þessa ágæta fyrrv. flokksbróður míns sem mér fannst satt best að segja kostulegt að heyra saka aðra um hentistefnu áðan.
Herra forseti. Aðalatriðið er að ég tel að ekki sé hægt að halda fundahaldi svo áfram þegar ljóst er að miklar umræður geta orðið um málið vegna ummæla 17. þm. Reykv. Ég er t.d. á mælendaskrá --- a.m.k. bað ég um orðið --- og gæti þurft að fara í þó nokkru máli yfir það sem hv. 17. þm. Reykv. lagði til umræðunnar. Þannig stendur á að í kvöld er fram undan sjónvarpsþáttur þar sem verða umræður í sjónvarpi um eitt af málum þingsins. Eins og hv. þm. er væntanlega kunnugt er það í raun og veru hluti af nokkurs konar samkomulagi um framkvæmd mála --- ef svo má að orði komast og þó tæplega --- að sendur verði út lengdur þingsjárþáttur síðar í kvöld í sjónvarpinu og þar verð ég meðal þátttakenda. Ég hlýt því að spyrja m.a. af þessu tilefni þó ekki kæmi annað til eins og svelti manna hvað hæstv. forsetar hugsa sér í þessum efnum og fara fram á einhver svör fljótlega því að ég get ekki verið hér miklu lengur vegna þess að nokkurn aðdraganda þarf að slíkum þætti og m.a. þurfa menn að vera mættir með góðum fyrirvara til þátttökunnar.