Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um stöðu EES-samninganna

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 13:57:00 (3091)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) :
     Virðulegi forseti. Eins og fram kom skýrt í orðum hæstv. forsrh. hér áðan, þá lýsti hann því yfir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans að meðan þessar viðræður eru ekki til lykta leiddar, þá verði ekki af hálfu stjórnarliða breytt um stefnu. Forusta þess máls er nú í höndum Íslendinga að því er EFTA-hópinn varðar. Það mun koma í ljós á sínum tíma en þangað til verður að sjálfsögðu ekki breytt stefnu.